Vikan - 10.05.1999, Side 49
j
f j á r h
agsörðugleika
misstu ekki íbúðina. Lét hún í
það skína að hún skildi ekkert í
aumingjaskapnum í okkur. Hún
vissi ekki að maðurinn hennar
hafði sagt mér að faðir hans
hefði veitt þeim verulega fjár-
hagslega aðstoð, en þegar ég
nefndi það við hana vildi hún
ekkert við það kannast og
fullyrti að þau hefðu
einfaldlega komist
úr erfiðleikunum
fyrir eigin dugnað
og útsjónarsemi.
Ef við þurftum
að skuldbreyta lán
um eða taka ný
kveið ég því dögum og
vikum saman að þurfa að
leita til ættingjanna. Marg-
ir tóku mér alltaf vel og
þangað fór ég auðvitað
oftast. Þetta er ein
grimmdin í kerfinu hér á
íslandi, þessi sjálfskuldar-
ábyrgð. Bankarnir eiga
bara að meta greiðslugetu
viðskiptavina sinna og að-
stæður en ekki að festa alla
fjölskylduna í neti fjárhags-
vandræða ef eitthvað fer
úrskeiðis hjá einum
meðlima hennar. Að
ekki sé talað um
hvað það er nið-
urlægjandi að
hvað bjátar á. Ég vil taka fram
að enginn ættingja okkar tap-
aði fé okkar vegna og engin
lán féllu á ábyrgðarmenn.
Á þessum tíma reyndi ég
líka að taka námskeið til að
gera mig að verðmætari starfs-
krafti þar sem ég vann lág-
launastarf og hafði ekki
möguleika á betur laun-
uðu starfi. Þessi nám-
skeið skiluðu mér þó
lítilli launahækkun,
sem svaraði varla
þeim kostnaði sem
ég lagði út í vegna
þeirra. Maðurinn
minn er
iðnað-
þurfa að
ganga eins
og bón-
bjargar-
maður fyrir
hvers
manns
dyr
þegar
eitt-
„Nú vorum við komin á reigumarkað'
inn og gekk ekki á öðru en flutningum
hjá okkur mestu árin“
maður og eins kunnugt er varð
mikill samdráttur í þjóðfélaginu
á seinni hluta síðasta áratugar
og fundu iðnaðarmenn ekki
síst fyrir því.
Til að gera langa sögu stutta
þá misstum við íbúðina okkar.
Það var ómögulegt að standa í
skilum á afborgunum lánanna
með þau laun sem við höfðum.
Þegar við seldum fór allt sem
við áttum í að greiða upp
skuldir og við stóðum eftir slipp
og snauð þrátt fyrir að hafa átt
skuldlausa litla íbúð þegar lagt
var upp. Til allrar guðs lukku
vorum við þó nærri skuldlaus.
Nú vorum við komin á leigu-
markaðinn og gekk ekki á öðru
en flutningum hjá okkur næstu
árin. Flestar íbúðir eru aðeins
leigðar timabundið meðan eig-
endur eru erlendis eða þar
til ættingjar þurfa á þeim
að halda. Við reyndum
eftir megni að halda
okkur innan eins
hverfis svo börnin
gætu gengið í
sama skóla en
það tókst ekki
alltaf. Eitt barn-
anna okkar fann
illa fyrir þessu en
hin gátu betur
bjargað sér, eru
þannig persónuleikar.
Þegar Ráðgjafarstofa um fjár-
mál heimilanna var stofnuð leit-
uðum við þangað og fengum
góð ráð. Með hjálp þeirra tókst
okkur að skipuleggja fjármálin
þannig að við gætum lagt fyrir
og erum nú að safna fyrir
íbúð.
Líkt og áður
getum við ekki leyft
okkur neitt en vitum
þó að við erum að
vinna að betri fram-
tíð. Mér þykir verst hve erfitt
allir eiga með að skilja þann
vanda sem við lentum í.
Sigtúnshópurinn var stofnaður
til að reyna að vekja athygli á
vanda fjölda fólks sem stóð í
sömu sporum og við. Sumum
tókst að halda sér á floti en
aðrir sukku eins og við gerðum
og nokkrir drukknuðu, þ.e. urðu
gjaldþrota. Þrátt fyrir að fjallað
hafi verið um þetta í fjölmiðlum
og opinberlega á sínum tíma
finnum við stöðugt fyrir fordóm-
um. Það færist alltaf vantrúar-
svipur yfir andlit viðstaddra ef
maður hefur máls á þessu.
Enginn trúir því að fáránlegum
aðgerðum stjórnvalda hafi ver-
ið um að kenna. Við vorum ein-
faldlega eyðsluklær sem sjálfar
grófu sína eigin gröf. Mér þótti
hins vegar vænt um, og ég er
viss um að svo er um fleiri sem
lentu í sömu stöðu og ég, þeg-
ar fram kom í ævisögu Stein-
gríms Hermannssonar að hann
teldi þessar aðgerðir, sem
stjómvöld gripu til, hafa verið
mistök og hann vissi að margir
hefðu lent í miklum fjárhagserf-
iðleikum þeirra vegna. Hann
skynjaði það að hafa tekið þátt
í þessum aðgerðum sem svart-
an blett á annars ágætum ferli.
Mikið viidi ég að svo væri um
fleiri stjórnmálamenn."
lesandi seqir
Steingerði
Steinarsdóttur
sögu sína
Vilt þú deila sögu þinni
meö okkur? Er eitthvað
sem hefur haft mikil áhrif
á þig, jafnvel breytt lífi
þínu? Þér er velkomið að
skrifa eða hringja til okk-
ar. Við gætum fyllstu
nafnleyndar.
Ileiinilist'aiigin cr: Vikun
- „I.ífM'eynsliiNjga". Scljuvcgur 2,
101 Kcykjuvík,
Nctfang: vikun@frodi.is
Vikan 49