Vikan - 31.08.1999, Blaðsíða 63
FACE
LE
VERNIS
DOUBLE BLANc
» BCHCH WmiT*
CHANEL
Rós Vikunnar fær Elín Oddsdottir, tryggingafulltrui hjá
Tryggingastofnun Ríkisins. Það er Halldóra Ólafs-
dóttir sem sendir Elínu kveðju með þessum orðum:
„ Ég hef aldrei séð þessa konu, aðeins talað við hana
í síma. í ágúst ‘98 átti ég fyrst samskipti við hana, en
þá var ég að fara í fæðingarorlof. Ég hafði skrifað
eitthvað vitlaust á umsóknina svo mér barst ekki
greiðsla. Ég var að fara í sumarbústað og var að
bíða eftir aurunum svo nú voru góð ráð dýr. Ég fékk
samband við Elínu og hefðí ég ekki notið aðstoðar
þessarar góðu konu hefði ég ekki komist í bústaðinn.
Nú aftur þarf ég að sækja um fæðingarorlof vegna
barns sem ég missti eftir hálfa meðgöngu og á rétt á
þriggja mánaða fæðingarstyrk. Elín hringdi í mig og
lagði málið fyrir mig, spurði hvemig ég vildi fá greitt
og hvenær. Það er óhætt að segja að þessi góða
kona á allar góðar þakkir skildar fyrir sína frábæru
greiðasemi. Það er allt of sjaldan sem við heyrum af
því góða og því langar mig að koma þökkum mfnum
á framfæri með þessu móti.
S Vikunnar
...naglalökkum. Naglalakk á vel snyrtum höndum er fallegt og líka góður
kostur fyrir neglurnar. Þær konur, sem eru duglegar að hirða neglur sínar og
nota naglalakk að staðaldri, halda nöglum
sínum í mun betra ástandi en þær
sem gera það ekki. Nagla-
lakk ver neglurnar fyr-
ir ýmsu áreiti og
með notkun
þess gulna
þær síður.
Munið að
nota
ávallt
undirlakk.
Þekkir þú einhvern sem á skilið að fá rós Vikunn-
ar? Ef svo er, hafðu þá samband við „Rós Vik-
unnar, Seljavegi 2,101 Reykjavík“ og segðu okk-
ur hvers vegna. Einhver heppinn verður fyrir val-
inu og fær sendan glæsilegan rósavönd frá
Blómamiðstöðinni.
... rósettum.
Fátt er fallegra til skreytinga á
heimilum en útflúraðar rósettur. í
málningarvöruverslunum og á fleiri stöðum er gott úrval af margvíslegum
rósettum, ýmist úr gifsi eða plasti. Þær gefa heimilinu hlýlegan og jafn-
framt fínlegan blæ.
Illlllllllllll"'
03 591 164