Vikan - 16.11.1999, Side 7
i- ■
„Ég verð hinum
megin við banka-
stíoraborðið eins
og venjulega"
sjálf og fljótlega var hún far-
in að láta sérsauma á ís-
lenskar konur fyrir sig er-
lendis.
Saumað fyrir
sjálfstraustið
„Ég læt sauma dragtir og
kjóla fyrir mig í Bretlandi.
Ég leitaði lengi að heppilegu
fyrirtæki og það endaði með
að ég samdi við Ariella, sem
er stærsti kjólaframleiðandi
í Evrópu. Þetta er þekkt
merki með vandaðan fatnað
sem meðal annars kónga-
fólk kaupir og til gamans má
geta, að ég er með merki
sem Díana heitin prinsessa
klæddist. Ariella saumar fyr-
ir mig vandaðan fatnað sem
passar íslenskum konum.
Við erum allt öðruvísi
byggðar en t.d. franskar eða
ítalskar konur og við þurf-
um önnur snið og stærðir.
Það er mjög gaman að geta
boðið þessar vörur hér, þær
eru þekktar fyrir gæði og
þykja dýrar erlendis en ég
get boðið þær ódýrari hér
heima. íslenskar konur fá
þessa flottu síðkjóla á bilinu
13-20 þúsund krónur sem
þætti gott þar.
Ég nýt þess að finna gleð-
ina hjá konum sem versla
við mig. Þær verða svo
þakklátar þegar þær byrja
að máta og sjá að það eru til
fallegar dragtir og fínir kjól-
ar á fullþroska konur! Það
eykur sjálfstraust þeirra.
Það er skelfilegt að verða
vitni að því að glæsilegar,
hraustar konur, geislandi af
persónutöfrum og fegurð,
koma fullar af vanmáttar-
kennd inn í verslunina, fyrir-
fram vissar um að ekkert
passi þeim eða klæði þær.
Það er beinlínis sorglegt.
Þær eru vanar því að máta
föt sem eru hönnuð fyrir allt
annað vaxtarlag en norræn-
ar konur hafa.
Venjulegar konur og
tískusýningar
Ég hef lagt mikið upp úr
því að hafa venjulegar kon-
ur í auglýsingunum mínum,
þekktar konur úr þjóðlífinu
í stað eintómra sýningar-
stúlkna. Þær hafa tekið því
vel og lagt talsvert á sig.
Margrét Blöndal er t.d. í
einni af nýjustu auglýsing-
unum og einu sinni stóð
Margrét Frímannsdóttir úti
á Grandagarði í 15 stiga
frosti, berhandleggjuð í pall-
íettukjól, í myndatöku og
kvartaði ekki einu sinni!
Ég fæ sjálf mikið út úr
þessum verslunarrekstri,
þetta er mjög þakklátt starf.
Ég hef alltaf lagt mikla
áherslu á að halda tískusýn-
ingar úti um allt land og að
selja vöruna í gegnum þær.
Þessa vöru hefur algerlega
vantað utan Reykjavíkur.
Dragtir og síðkjólar eru dýr
lager í verslunum og það er
útilokað að verslanir úti á
landi geti með góðu móti
boðið þessa sérvöru. Ég er
henni tekst að láta mig halda að ég ráði einhverju. “
Vikan 7