Vikan - 25.01.2000, Blaðsíða 22
Vínningshafinn i Kúbuleiknum fékk
Máturskast begar hringt uar í hann til
að tilkynna honum að hann hefði unnið
terð fyrir tvo til Kúbu á vegum Sam-
vinnuferða - Landsýnar. Bjarni er einn
af heim sem kaupir Vikuna gjarna í
lausasölu og safnaði hornunum af
rælní og sendi inn í Aldamótaleikinn.
shafi í Aldantótaleik Vikunnar
amuinnuferða - Landsýnar!
- Bjarni tekur við
gjafabréfinu á
skrifstofu Sam-
vinnuferða -
Landsýnar
„Eg er svo aldeilis hissa!
Ekki hafði ég búist við
þessu, - er þetta satt?"
spurði Bjarni Gylfason og
hló.
Það vill svo furðulega til
að Bjarni hefur áður komið
til Kúbu, en það var í hitteð-
fyrra.
„Það var frábært. Manni
líður alveg sérstaklega vel
þarna og það eina sem mér
fannst að var að tíminn var
of stuttur. Ég er lítið gefinn
fyrir að liggja á baðströnd-
um, en það er svo margt að
skoða þarna og nú get ég
klárað að skoða það sem ég
náði ekki síðast. Ég ætla að
fara á syðstu eyjuna, Santi-
ago; ég náði ekki að komast
þangað þótt ég hafi þvælst
um og skoðað eins mikið og
ég hafði tíma til."
Bjarni sagðist geta mælt
með Kúbu af heilum hug og
hann hlakkaði mikið til að
koma þangað aftur. Hann
talaði sérstaklega um að á
Kúbu hefði fólk á tilfinning-
unni að það væri öruggt sem
ferðamenn, en það er ekki
oft hægt að segja um svo
framandi staði. Varader-
oströndin er verndað svæði
og vel lokuð af og þangað
koma heimamenn ekki.
Ferðamenn geta samt ferð-
ast frjálsir hvert sem þeir
vilja, heimafólkið er mjög
vingjarnlegt og það er gam-
an að skoða hvernig fólkið í
landinu býr.
Bjarni er vanur að ferðast
og segist mest ferðast einn.
„Ég hef ferðast svolítið um
Evrópu og Ameríku og
reyni yfirleitt að kynnast
fólki og skoða hvernig það
lifir. Ég get aldrei haldið
neinum áætlunum. Einu
sinni hélt mamma að ég væri
í Frakklandi en þá hringdi
ég í hana frá Madríd. Þetta
er svona dæmigert um það
hvernig ég ferðast. Ég beygi
yfirleitt til hægri ef ég er
búin að segjast ætla til
vinstri. Það er ábyggilega
ekkert gaman að ferðast
með mér. Mamma er búin
að panta að fá að fara með,
en hver veit nema ég breiði
bara úr mér í bæði sætin!"
segir hinn bráðhressi vinn-
ingshafi í Aldamótaleiknum
og hlær sínum smitandi
hlátri.