Vikan - 25.01.2000, Blaðsíða 2
Nylega uar opnað sannkallað Sælkeragallerý á
Grensásvegi 48 par sem Gallerý Kjöt hefur selt af-
bragðsgóða kjötuörur til margra ára. Sælkerar
landsins hafa núna möguleika á að kaupa Ijúf-
fenga eftirrétti, ilmandi brauð og syndsamlega
gott sælgæti um leið og beir kaupa kjötið sitt.
Hafliði Ragnars-
son, bakari úr
Mosfellsbakaríi,
fékk hugmynd-
ina að Sælkeragallerýinu
fyrir mörgum árum. Fyrir-
myndin er erlendis frá, sér-
staklega sótt til Frakklands
og Belgíu. Flafliða dreymdi
um að opna gallerý í anda
5 Gallerý Kjöts þar sem meg-
ináherslan væri lögð á úrvals
ij, ■. þjónustu og gæðavöru. Fyrir
« £ nokkru síðan hóf hann við-
Z öí
™ ræður við forsvarsmenn
c Gallerý Kjöts.
Sameiningin tókst vel og
(5 i) síðastliðið haust fékk Mos-
.. Vj fellsbakarí helminginn af
* c húsnæðinu sem Gallerý Kjöt
í E hafði til umráða og þar með
var Sælkeragallerýið orðið
að veruleika.
Hafliði Ragnarsson er þrí-
tugur að aldri og lauk bak-
aranámi árið 1995. Að því
loknu dreif hann sig til Dan-
merkur í svokallað
konditornám sem hann lauk
1997. Síðan hefur hann
starfað, ásamt föður sínum
og öðrum fjölskyldumeðlim-
um, í sjálfu fjölskyldufyrir-
tækinu, Mosfellsbakaríi.
„Pabbi opnaði bakaríið
árið 1981 en þá var ég 11
ára. Öll fjölskyldan tók virk-
an þátt í rekstrinum og því
má segja að ég sé alinn upp í
bakaríinu. Eg vann alla tíð í
því samhliða skólanum. Ég
þrjóskaðist lengi við að fara
í bakarann en lét svo undan
að lokum."
Margfaldur meistari
Það er ekki nóg með að
faðir Hafliða sé bakari held-
ur voru afi hans og langafi
líka bakarar. Þeir áttu bak-
arí á Patreksfirði. Bakara-
hæfileikarnir erfast greini-
lega í þessari fjölskyldu.
Hafliði hefur margsannað
hæfileika sína á þessum vett-
vangi og er margfaldur
meistari í kökuskreytingum,
bæði hérlendis og erlendis.
Þótt karlpeningur fjöl-
skyldunnar sjái um bakstur-
inn hefur kvenfólkið líka
lagt sitt af mörkum. Systir
Hafliða sér um bakaríið í
Mosfellsbæ en konan hans
sér um verslunina á Grens-
ásveginum.
Þeir sælkerar sem hafa
yndi af góðu kaffi og með-
læti ættu að gefa sér tíma til
að koma við í gallerýinu á
Grensásveginum. Umhverfi
og innréttingar undirstrika
sérstöðu þess og það er eins
og maður sé kominn til út-
landa þegar gengið er inn
um dyrnar.
Hvað er svo fram undan
hjá ykkur?
„Við erum rétt að byrja að
þróa þessa verslun og ná
þeim markmiðum sem við
settum okkur með hana.
Þau voru að búa til „gour-
met" búð frekar en hefð-
bundið bakarí. Við bjóðum
upp á sérstakt bakkelsi og
góð brauð auk þess sem við
sérhæfum okkur í eftirrétt-
um. Við eigum ennþá margt
ólært og það tekur sinn tíma
að ná settum markmiðum."
Hafliði er bjartsýnn á að
Islendingar kunni að meta
þessa nýjung á matvöru-
markaðnum enda óhætt að
segja að mikið vatn hafi
runnið til sjávar síðan ís-
lensk bakarí buðu fyrst og
fremst upp á tvenns konar
meðlæti, snúða og vínar-
brauð.
A
2 Vikan