Vikan


Vikan - 25.01.2000, Blaðsíða 49

Vikan - 25.01.2000, Blaðsíða 49
Neyðist þú til að taka dagbókina með þér upp í rúm? að taka þátt í heimilisstörfunum (já, strákarnir hafa líka gott af því). Til að byrja með er tilvalið að láta börnin fá auðveld verkefni sem þau ráða vel við t.d. að sópa forstofuna eða fara út með ruslið. Smám sam- an er hægt að treysta þeim fyrir flóknari verkefnum og stálpaðir unglingar geta að sjálfsögðu tekið fullan þátt í heimilisstörfunum. Varla þarf að taka það fram að full- orðið fólk sem býr á „Hótel Mömmu“ er tilvalið í tiltektina. 6. Þvotturinn Brjótið saman þvottinn um leið og hann er orðinn þurr. Það er ekki til neins að bíða, þú getur treyst því að þremur dögum síðar verður þrisvar sinnum meira sem þarf að brjóta saman. 7. Ekki tivo hrein föt Mörg börn setja gjarnan hrein föt í óhreinatauskörfuna eða láta hrein föt liggja á gólfinu hjá sér. Reyndar eru það ekki bara börnin heldur fjöldi fullorðinna sem hefur þennan háttinn á. Gakktu strax frá hreinum þvotti á réttan stað og þannig getur þú komið í veg fyrir að þvo hann aftur. Kenndu börnunum að setja fötin á réttan stað um leið og það er búið að brjóta hann saman. 8. Leiktu á sjálfan hig Þeir sem eru alltaf fimm mínút- um á eftir áætlun ættu að stilla úr sitt þannig að klukkan sé tíu mínút- um of fljót. Það ætti að hjálpa þér að mæta á réttum tíma. 9. Láttu ekki símann trufla big Ekki hlaupa í símann ef þú ert að verða of sein. Með nútímatækni getur þú treyst á að sjá hver hringdi í þig þar sem flestir símar hafa númerabirti. Ekki hringja í einhvern sem þú veist að talar lengi þegar þú ert að flýta þér, þú getur verið viss um að þá fyrst verður þú of sein. 10. Möppur í mörgum litum Til að halda pappírsmálunum í skefjum er ágætt að vera með mis- munandi lit pappaumslög undir blöð og pappíra. Rautt umslag fyrir greidda reikninga, blátt umslag fyrir söngtexta o.s frv. Þeir sem eru í námi geta sparað sér mikinn tíma með því að aðgreina glósur og blöð frá kennaranum í hverju fagi og setja í mismunandi litar möppur. 11. Skipulag dagsins Áætlaðu hversu langan tíma það tekur þig að gera tiltekna hluti. Skráðu svo hjá þér hvað það tók langan tíma í rauninni. Við reiknum oft með of litlum tíma í okkar dag- legu verk. 12. Einn tiltektardagur Á fjölskyldufundinum er ágætt að ákveða einn dag í viku þar sem allir hjálpast að við að taka til. Þið ákveðið tímann sem tiltektin á að taka og svo er bara að meta árang- urinn að þeim tíma loknum. 13. Ekkert sjónvarp - engin tölva Takmarkaðu sjónvarps- og tölvu- notkun heimilismeðlima á þeim tíma þegar allir eiga að vera að sinna sínum skyldustörfum. Það er ágætt að hafa tölvunotkun sem umbun fyrir vel unnin störf á heim- ilinu en hún á ekki að vera sjálf- sagður hlutur. 14. Á morgun Reyndu ætíð að klára sem flest verk að kvöldi til í stað þess að láta þau bíða eftir þér næsta morgun. Það er góð regla að gera nestið til- búið kvöldið áður því fátt er eins pirrandi og að vakna of seint að morgni og eiga allt eftir. 15. Innkaupalistinn Skrifaðu á miða hvað þig vantar úr matvöruversluninni. Reyndu aö koma hlutunum þannig fyrir að þú þurfir einungis að versla einu sinni í viku. Með slíkan lista kemur þú í veg fyrir að þú kaupir einhvern óþarfa og sparar þér ferðir í næstu matvörubúð þegar þig vantar pipar eða brauð. hlutunum á réttan stað. Þið getið ákveðið í sameiningu hvar vettling- ar, húfur og hlífðarfötin eiga að vera. Umslög, pennar, símaskrá o.s.frv. þurfa að eiga sinn stað og með því að geta gengið að hlutun- um sem vísum sparast mikill tími. 19. Beint í ruslið Líttu inn í skápana hjá og þér og athugaðu hvort þar leynist ekki ým- islegt sem má missa sín. Prófaðu að setja þau föt sem þú hefur ekki farið í síðustu sex mánuði í poka og geymdu í nokkra mánuði. Ef þú saknar þeirra ekki að þeim tíma liðnum er tímabært að gefa þau til Rauða krossins eða Hjálpræðis- hersins. Oft safnast mikið rusl í skápinn á baðherberginu, í flestum tilfellum má sjötíu prósent af því missa sín. 20. Ekki flækja hlutina Ef þú og maki þinn eruð bæði útivinnandi, þurfið að sinna heimili og börnum að vinnutíma loknum er ágætt að vera raunsær. Ekki fara aö elda einhverja rosalega flókna kvöldmáltíð. Það pirrar þig bara að vera seint á ferðinni með allt hitt sem á eftir kemur. Njóttu þess frek- ar að elda flókna máltíð þegar þú hefur nægan tíma. 16. Símanúmerin Geymdu lista með nauðsynlegum símanúmerum við hlið símans. Á listann skaltu skrá símanúmer ykk- ar foreldranna, ömmu og afa, neyð- arsíma o.s.frv. Það er líka góð regla að hafa símanúmer kennarans og foreldra annarrabarnaíbekknum. 17. Falinn fjársjóður Búðu til umslag eða finndu til kassa þar sem þú getur sett gjafir, teikning- ar og listaverk barnsins á einn og sama staðinn. Barn- ið hefur lagt mikla vinnu í verkið þótt þér finnist það ómerkilegt. Þið get- ið haft gaman af því seinna meirað skoða þessi dýr- mætu listaverk. 18. Allt á sín- um stað Vendu þig og þína á að ganga frá Á J)essu heimili er skipulagið í lagi þrátt fyrir þrengsli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.