Vikan - 25.01.2000, Blaðsíða 48
Texti: Margrét V. Helgadóttir
1 /j ® fctl)\llP' Íf
1 ® M1
leiðir til að bæta skipulagið
Er dagurinn hjá bér suo héttskipaður að hú mátt varla vera að hví að
snæða hádegismatP Bíður hín fjall af óhreinum hvotti, leirtau í vask-
inum og eiga börnin eftir að læra heima og fara á íhróttaæfingu? Þeg-
ar hú hefur lokið öllum skylduverkunum er klukkan há langt gengin í
tólf á miðnætti og ekkert nema kalt rúmið sem bíður hín?
Þú getur huggað hig við há staðreynd að hú ert ekki eina manneskjan
í heiminum sem er að fást við betta vandamál. Susan D'flrcy er höf-
undur bókarinnar „Skipulag hinnar uppteknu konu" en í heírri ágætu
bók má finna ýmis góð ráð til að brjóta upp ríkjandi mynstur og
skipuleggja sig ennhá betur. Reiknaðu með mánuðí tíl að endurskipu-
leggja heimilið og sjáðu til hvort bú hafir ekki meiri frítíma!
Börnin á heimil-
inu geta tekið
virkan þátt í
heiniilishaldinu.
1. Pláss fyrir hlutina
í barnaherbergjum er nauösyn-
legt aö hafa hirslur undir leikföng
og fatnað. Þær þurfa ekki að vera
dýrar eöa stórar. Öll fötin þurfa að
komast fyrir í fataskápnum, þar
með talið sparifötin og hlífðarfatn-
aður. Hillur undir bækur, leikföng
eða aðra hluti þurfa að vera til stað-
ar, annars eru þessir hlutir á gólf-
inu.
2. Allir fá sinn kassa
Það er ágæt regla að allir fjöl-
skyldumeðlimir hafi sitt hólf eða
sinn kassa. Þangað fer allur póstur,
miðar frá skóla og annað slíkt. Mik-
ill tími sparast þegar hægt er að
ganga að pappírunum á vísum
stað.
3. Korktafla eða dagbók
Á barnmörgum heimilum þarf að
huga að ýmsum þáttum. Félags-
starf, íþróttaæfingar og afmæli geta
gleymst í amstri dagsins og því er
tilvalið að setja allar mikilvægar
dagsetningar upp á töflu eða í eina
bók. Þar skráir hver fjölskyldumeð-
limur það sem hann þarf að gera í
vikunni, dag og tímasetningu. Fyrir
yngri börnin er ágætt að foreldrar
skrái niður allt sem gera þarf, það
auðveldar líka að skipta verkum á
milli sín. Tafla eða dagbók getur
bætt skipulagið til muna.
4. Fjölskyldufundir
Heimilishaldinu má líkja við smá-
fyrirtæki. Störfin hvíla á nokkrum
einstaklingum sem allir eru mjög
uppteknir. Margar fjölskyldur hafa
tekið upp þann sið að halda stuttan
fjölskyldufund einu sinni í viku þar
sem málin eru krufin til mergjar.
Þetta fyrirkomulag hefur reynst sér-
lega vel þar sem unglingar eru á
heimili. Á þessum fundi er hægt að
ræða margt annað en skipulag
heimilisins t.d. útivistartíma og
annað í þeim dúr.
5. Heimilisstörfin
Um leið og börnin vaxa úr grasi
er fullkomlega eðlilegt að þau læri