Vikan - 11.07.2000, Blaðsíða 4
Kæri lesandi
W var ein þeirra sem
Mj baðaði sig frjálslega
M ' upp úr Bláa lóninu
W. . við Svartsengi
löngu áður en þar reis nokkur
vísir að mannvirki. Maður að
nafni Valur, mig minnir að
hann hafi verið Magnússon,
sem hafði þjáðst afslœmu
psoriasis í mörg ár, datt það
snjallrœði í hug að baða sig í
lóninu í von um að það myndi
verða til þess að draga úr ein-
kennum sjúkdómsins. Hann
keyrði nokkuð langa leið til
þess að stunda böðin og eflaust
hafa margir talið hann brjálað-
an að liggja þarna í hráslaga-
Lskningalind?
legu umhverfinu í misheitu
vatni með dynjandann frá
Hitaveitu Suðurnesja í bak-
grunninum.
En viti menn, þessar tilraunir
Vals urðu kveikjan að frekari
rannsóknum og lœkningar-
máttur lónsins kom í Ijós. Nú
þekkir hvert mannsbarn á fs-
landi þennan vinsœla stað og
risin er heljarinnar miðstöð við
lónið með stórum veitingasal,
verslun sem selur lopapeysur
og ýmis krem úr lóninu og svo
mœtti lengi telja. Aðgangur
ofan í náttúrulindina okkar er
seldur dýrum dómi ogferða-
mönnum er smalað inn í risa-
stórar rútur eins og kindum í
rétt til þess að skoða nátt-
liruparadísina og eyða þar
gjaldeyri sínum. Hljómsveitir
taka upp myndbönd sín í dul-
arfullu umhverfi lónsins og oft
hefur lónið verið notað fyrir
myndatökur á íðilfögrum fyrir-
sœtum.
En hvar œtli uppfinningamað-
urinn Valur sé í dag? Hefur
honum ekki verið eignaður
heiðurinn afþví að uppgötva
lœkningalindina miklu? Eða
eru það þrœlar mammons sem
hirða alla uppskeruna?
Egfór nýlega í Bláa lónið á
sérlega sólríkum ogfrekar heit-
um sumardegi. Eg hlakkaði til
að njóta veðurblíðunnar og
svamla í lóninu. Eg varð hins
vegar fyrir vonbrigðum með
„nýja“ lónið. Pað var hvergi
skjól þar og engin sólbaðsað-
staða en aflýsingum að dœma
bjóst ég auðvitað við sólbekkj-
um og jafnvel Itvítri strönd. En
„ströndin “ reyndist vera lítill
reitur með svörtum sandi, ekki
öllu stœrri en meðalsandkassi
og hvergi var hœgt að sóla sig
fyrir vindinum. Ég hafði frétt
að maður gœti beðið um kísil
ogfengið hann ífötu og bað
starfsmann um eina slíka.
Hann sagði að kísillinn hefði
KLARAST daginn áður en
kannski vœri von á honum
seinni partinn. Bara svona eins
og snúðarnir í bakaríinu vœru
búnir. Það er óhœtt að segja að
ég hafi orðið fyrir miklum von-
brigðum með Bláa lónið.
En það verður enginn fyrir
vonbrigðum með Vikuna! Að
þessu sinni erum við með
einkaviðtal við Helgu Agnars
Jónsdóttur sem var gift Önnu
Kristjáns, kynskiptingi. Við
tökum hús á umsjónarmönn-
um Kastljóss og kynnum okk-
ur einnig málin hjá Blairfjöl-
skyldunni. Glæný smásaga,
tískuumfjöllun og spennandi
lífsreynslusögur eru á meðal
efnis sem œtti að halda lesend-
um hugföngnum.
Njóttu Vikunnar!
Hrund Hauksdóttir,
ritstjóri
Ritstjórar: Jóhanna G. Harðardóttir og Hrund Hauksdóttir,
vikan@frodi.is. Útgefandi: Fróði hf. Seljavegi 2, sími: 515 5500
fax: 515 5599. Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson.
Aðalritstjóri: Steinar J. Lúðvíksson, sími: 515 5515.
Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdóttir, sími: 515 5512.
Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Gunnhildur Lily
Magnúsdóttir, Guðriður Haraldsdóttir og Margrét V. Helgadóttir.
Auglýsingastjórar: Ingunn B. Sigurjónsdóttir og Sigriður
Sigurjónsdóttir vikanaugl@frodi.is.
Grafískur hönnuður: Guðmundur Ragnar Steingrímsson.
Verð í lausasölu 459 kr. Verð i áskrift ef greitt er með greiðslukorti
344 kr. á eintak. Ef greitt er með gíróseðli 390 kr. á eintak.
Litgreining og myndvinnsla: Fróði hf. Unnið i Prentsmiðjunni
Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir.
Áskriftarsími:
515 5555