Vikan - 11.07.2000, Side 12
I’aft er ætíð stutt í glcns og gnn hja þeiin skötuhjnnni oj> þeini
fannst litiö tiltökuinál aft hregfta á leik fyrir Ijósinyndara Vik-
unnar. Áhorfendur eru ekki vanir aft sjá þau í sófaniiin gófta
en Sara lætur fara vel uni sig á meftan Gísli tekur púlsinn á
lieiiiisniálunuin í iMoreimhlaftinii.
irtæki og vinnur því líka mjög
mikið. Við reynum að púsla tím-
anum okkar saman þegar við
erum bæði í fríi.“
Gísli: „Kærastan mín heitir
Vala Ágústa og er íslenskunemi
og blaðamaður á Morgunblað-
inu, þannig að fréttir skipta miklu
máli á heimilinu. Við eigum litla
stelpu sem heitir Elísabet Unnur.
Ég reyni að nota morgnana til að
vera með dóttur minni, því hún
er yfirleitt sofnuð þegar ég kem
heim á kvöldin. Þegar við geng-
um frá ráðningu vissum við að
þetta yrði strembið ár og lítið unt
frí. Við Sara höfum kannski tek-
ið okkur frí frá tíu þáttum hvort
í sínu lagi, maður stekkur ekk-
ert í burtu eða getur tekið sér frí
eftir hentisemi."
Ung en reynslumikil
Gagnrýni er einn fylgifiskur
þess að starfa í fjölmiðlum og þau
Sara og Gísli hafa ekki farið var-
hlutaafhenni. Gárungarnir köll-
uðu Kastljósþáttinn barnahorn-
ið og margir töluðu um að þau
litu út fyrir að vera svo óskaplega
ung og óreynd.
Sara: „Við heyrðum líka þessa
gagnrýni og tókum henni með
jafnaðargeði. Við erum tuttugu
og sjö og átta ára, bæði með há-
skólamenntun og starfsreynslu í
faginu. Við létum þetta samt ekk-
ert á okkur fá og getum glatt þá
sem eru þessarar skoðunar að við
eldumst með hverjum deginum.“
Gísli: „Þessar gagnrýnisraddir
heyrast ekki lengur. Fólk er al-
mennt ánægt með þáttinn. Ég
skil alveg að einhverjum hafi
fundist við vera ung. Við ákváð-
um hinsvegar að vera ekkert að
biðjast afsökunar á því vera ekki
eldri en við erum og snúa því
okkur í hag. Þess í stað erum við
með þáttinn örlítið léttari og við
reynum að taka hlutina ekki of
hátíðlega þegar það á við og
reynum að vera með skemmti-
leg efnistök. I sumar ætlum við
að hafa þæltina á léttum nótum,
t.d. að sýna frá menningarvið-
burðum og leiða fram á sjónar-
sviðið ungt fólk sem hefur frá
einhverju skemmtilegu að segja
í bland við eldra fólk.“
Sara: „Það koma líka alltaf
rosalega sterk viðbrögð þegar
nýtt fólk kemur fram á sjónar-
sviðið í sjónvarpi, kannski sér-
staklega í Ríkissjónvarpinu. Fólk
er vanafast og vill hafa andlit sem
það þekkir fyrir augunum. Ný
andlit lenda í hákörlunum og
þurfa að sanna sig en síðan
gleymist það að fólk var einhvern
tímann nýtt á skjánum.“
Gísli: „Strax eftir fyrsta þáttinn
hringdi til okkar fólk og þakkaði
fyrir þáttinn. Ég held að þessi
gagnrýni á aldur okkar hafi helst
komið frá heldur litlum hópi.“
Þrátt fyrir annríkið við vinn-
una eiga þau Gísli og Sara sér
áhugamál sem þau geta þó sinnt
af skornum skammti. Sara er
dansáhugamanneskja, hún
stundaði jassballett, ballett og
nútímaballett frá því hún var sex
ára gömul en hætti að dansa þeg-
ar hún byrjaði í blaðamennsku.
Hún stóð meðal annarra að gerð
dansstuttmyndarinnar „Örsög-
ur úr Reykjavík“ sem var frum-
sýnd fyrir nokkrum mánuðum.
Gísli á sterkan vinahóp sem í
eru meðal annars vinir hans sem
voru saman á leikskóla. Félags-
skapurinn kalllast Spilafélagið
Máni og meðlimir þess bralla ým-
islegt saman, fara meðal annars
saman til útlanda og svo má auð-
vitað ekki gleyma spilamennsk-
unni.
Frækileg frammistaða Gísla
Marteins í kringum Eurovision
keppnina vakti mikla athygli í
fyrra þegar Selma keppti í ísrael
en skyldi Eurovision vera eitt
margra áhugamála kappans?
Gísli: „Nei, þetta kom bara
upp í fyrra þegar Selma fór út.
Málin þróuðust bara þannig að
ég fór út og ég hef þá tilhneigingu
að sökkva mér í þau mál sem ég
tek að mér. Þar sem ég átti að
kynna keppnina lagðist ég í sög-
una og kynnti mér hana mjög
vel.“
Sara: „Þetta er alveg dæmi-
gerður Gísli. Hann kafar ofan í
allt. Hann fór til London um dag-
inn með vinum sínum í Hand-
knattleiksfélaginu Höndinni og
vakti margar nætur áður til að
lesa sér til um bresku konungs-
fjölskylduna. Hann er mikill
öfgamaður."
IVlas og málgleði
Nánir samstarfsmenn eins og
þau Gísli og Sara eru farin að
gjörþekkja hvort annað. Gísli,
hverjir eru helstu kostir Söru?
Gísli hugsar sig lengi en svo
kemur svarið, eða réttara sagt
lofræðan.
„Sara er skemmtileg, greind,
mjög fordómalaus og alltaf í
góðu skapi. Þetta gerir hana auð-
vitað að hreint frábærum sam-
..
starfélaga. Ég gæti ekki hugsað
mér að vinna þessa vinnu með
neinum öðrum en henni. Hún
bætir mig upp og mér finnst við
falla mjög vel saman í þessu
starfi."
Jæja, Sara, nú er kornið að þér.
Sara er ekki tilbúin með ræð-
una. „Mikið er ég fegin að þú
byrjaðir að spyrja hann.“ Eftir
svolitla stund er allt klárt. „Gísli
er mjög jákvæður sem mér finnst
mikill kostur. Gísli er líka mjög
fljótur að hugsa og ótrúlega hug-
myndaríkur og uppátækjasam-
ur. Svo er hann alltaf í góðu skapi,
ég hef alla vega ekki ennþá hitt
á hann í vondu skapi.“
Þið getið nú ekki verið svona
fullkomin í augum hvors annars
eða hvað?
Þau hlæja bæði og hvorugt er
tilbúið að vera fyrra til að nefna
gallana.
Gísli: „Það er kannski helst að
ég gæti nefnt að Sara er kannski
helst til of slök í umræðunni um
fótbolta svona í samanburði við
félaga mína. Svo þarf ég aðeins
að vinna í að breyta tónlist-
arsmekknum hennar. Hún er til
dæmis ekki hrifin af Bítlunum en
ég er einlægur aðdáandi og vill
geta spilað meira af tónlist þeirra
hérna í vinnunni.“
Sara: „Gísli talar kannski helst
tilof rnikið, hann mætti vera dug-
legri að vinna og tala rninna."
Gísli brosir að athugasemdinni
en verður að bæta við: „Jú, Sara
er rosalega samviskusöm og
mætti ntinnka vinnuna til að geta
talað meira við mig.“
Þið hljótið að rífast einhvern
tíma!
Þau skella bæði upp úr.
Sara: „Ég myndi ekki kalla það
rifrildi, meira svona rökræður.
En það er mjög jákvætt því það
er góð heilaleikfimi og fín upp-
hitun fyrir þáltinn að eiga í rök-
ræðurn við Gísla.“
Gísli: „Ég held ég geti fullyrt
að við höfum aldrei orðið ósam-
mála um efnistök eða viðmæl-
endur í þáttinn hjá okkur. Við
erum kannski ekki alltaf sam-
mála um alla hluti en við ræðum
þá til hlítar.“
Eftir töluverða fyrirhöfn kom
í ljós að helsta deilumálið er
kvenréttindamál og greinilegt að
þau hafa mjög ólíkar skoðanir í
þeim efnurn. Ekki reyndist unnt
að gefa út aukablað með Vikunni
þar sem þau Gísli og Sara gátu
komið skoðunum sínum á fram-
færi. Því ákváðunt við að ræða
þessi mál ekkert frekar, kveðja
þau í bili og þakka fyrir ánægju-
lega samverustund.
12 Vikan