Vikan - 11.07.2000, Page 48
Þýðing og samantekt: Margrét V. Helgadóttir
Meðgöngur og barnsfæð-
ingar Dykja ekki frélt-
næmir uiðburðir í heims-
pressunni nema helst
begar fræga fólkið á í
hlut. Oftast eru bað popp-
stiörnurnar og leikararnir
sem fá athygli út á ung-
uiðið en fyrir skömmu brá
út af beirri uenju.
Bretar fylgdust vel með
meðgöngu bresku
forsætisráðherrafrú-
arinnar og biðu í of-
væni eftir að nýjasli fjölskyldu-
meðlimurinn í Downingstræti 10
litli dagsins ljós. Leo litli fæddist
snemma morguns þann 20. maí
síðastliðinn og var kominn heim
til sín aðeins þremur klukku-
stundum síðar. Þar biðu hans þrjú
eldri systkini, Euan 16 ára,
Nicholas, 15 ára og Kathryn 12
ára. Bresku forsætisráðherra-
hjónin höfðu ekki skipulagt frek-
ari barneignir, enda eru þau bæði
í valdamiklum og annasömum
störfum. Tony Blair þótti segja
fremur klaufalega frá væntan-
legu barni þegar hann gerði
þungunina opinbera. Hann sagði
blaðamönnum að þau hefðu orð-
ið mjög hissa þegar þau komust
að því að þau ættu von á barni
en eftir að þau hefðu jafnað sig
væru þau mjög ánægð og hlökk-
uðu til.
Fólk á fimmtugsaldri ætti nú
að vita hvernig börnin verða til
og fjölmiðlar gerðu óspart gírn
að Blair fyrir þessi ummæli. Það
telst til tíðinda þegar jafnvalda-
miklir menn fara að standa í
bleiuskiptingum því flestir þeirra
komast til valda þegar þeir eru
búnir með „barnapakkann".
Aftur út á uinnumarkaðinn
Leo litli er fyrsta nýfædda
barnið sem flytur í Down-
ingstræti 10 í 150 ár. Fyrsti mað-
urinn sem sendi heillaóskaskeyti
til nýbökuðu foreldranna var
John Major, fyrrverandi forsæt-
isráðherra Bretlands, sem er
sjálfur að verða afi eftir tvo mán-
uði. Drottningin sendi að sjálf-
sögðu líka góðar óskir og gífur-
legur mannfjöldi safnaðist sam-
an fyrir framan heimilið eða
sendi skeyti og gjafir.
Cherie Blair þykir einn eftir-
sóttasti lögfræðingur Bret-
landseyja og mörgum þykir súrt
að sjá á eftir henni í fæðingaror-
lof. Hún ætlar þó ekki að taka sér
langt frí því hún stefnir á að vera
aftur komin til starfa eftir fjóra
rnánuði. Hún fær dygga aðstoð
frá barnfóstru sem hóf störf í
Downingstræti 10 um leið og þau
mæðginin komu heim af sjúkra-
húsinu. Eins og gefur að skilja er
þeim Tony og Cherie annt um
ímynd sína og þau eru ekki til-
búin að leyfa hverjum sem er að
mynda Leo litla. Hinn útvaldi
ljósmyndari var enginn önnur
Mary, dóttir bítilsins Pauls
McCartney. Mary er virtur ljós-
myndari í Bretlandi og Cherie
kynntist henni þegar þær unnu
saman að ráðstefnu um
brjóstakrabbamein. Frú Blair
vildi ekki fá neinn annan ljós-
myndara til að taka fyrstu mynd-
irnar af syninum. Mary var að
vonum stolt af þessari óvenju-
legu bón en brást vel við og tók
fínar myndir af nýja fjölskyldu-
meðlimnum þegar einungis 36
klukkustundir voru liðnar frá því
að hann fæddist.
48
Vikan