Vikan


Vikan - 25.07.2000, Side 4

Vikan - 25.07.2000, Side 4
Kæri lesandi ~W~ Winn 8. júlí síðast- m__m liðinn kom fjórða m M bókin um Harry M _h_ Potter í verslanir víðs vegar um veröldina og er bókin sú orðin stœrsta útgáfu- fyrirbœri sögunnar. í Banda- ríkjunum voru prentaðar 3.8 milljónir eintaka afþessari nýj- ustu bók sem nefnist „Harry Potter and the Goblet of Fire“ og það er bara fyrsta prentun- in. Engin bók hefur heldur selst eins vel íforsölu en œstir aðdáendur gátu pantað bókina og tryggt sér eintak nokkru fyr- ir sjálfan útgáfudaginn. Mikil spenna hafði byggst upp Söluliæsta bók sögunnar hjá lesendum skömmu áður en bókin kom út þar sem útgef- endur lögðu ofuráherslu á að fullkominn leyndardómur hvíldi yfir söguþræði nýju bók- arinnar og meira að segja titill bókarinnar var varðveittur eins og mesta hernaðarleyndarmál. Bóksalar sóru þess eið að opna ekki einn einasta kassa sem var merktur: „Harry Potter IV, selj- ist ekki fyrr en 8. júlí, 2000, “ fyrr en á tilsettum tíma. Til gamans má geta þess að dag- setning útgáfunnar er einmitt afmœlisdagur höfundarins, J.K. Rowling. Mikil leynd hvíldi yfir tilurð nýju bókar- innar og var það samkvœmt óskum höfundarins sjálfs. Hún hefur sagt að þetta hafi alls ekki verið liður í markaðssetn- ingunni afhálfu útgefenda heldur hafi hún aðeins óskað eftir að börnin fengju bókina beint í hendurnar án þess að hafa frétt áður nokkuð afsögu- þræðinum. Hún sagðist vilja að öll börn uppgötvuðu leynd- ardóma nýju bókarinnar á sama tíma. En sú getur þó auð- vitað ekki orðið raunin þar sem hin ýmsu þjóðlönd þurfa að snara handritinu yfir á eigið tungumál og því mega íslensk börn bíða dágóðan tíma eftir Potter sínum á íslensku. Þriðja bókin, „Harry Potter and the Prisoner of Azkaban", kemur í bókaverslanir á íslandi þann 4. nóvember nœstkomandi og má búast við að íslensk börn muni bíða í röðum eftir að fá að lesa meira um hetjuna sína. En hver er þessi Harry Potter? Fyrir þá foreldra sem hafa ekki enn kynnst galdraheimi þess- ara spennusagna þá er Harry Potter munaðarlaus drengur en hinni illi og voldugi galdra- maður Voldemort myrtifor- eldra drengsins þegar hann var kornabarn. Veslings Harry býr hjá illkvittinni frænku sinni og frœnda en á veturna stundar hann nám í Hogwarts skóla sem er skóli töfra og galdra. Þar á hann góða vini en lendir í ýmsum hremmingum og alls konar hryllingi meðan á nám- inu stendur. Það er valdabar- áttan á milli góðs og ills sem er meginþema bókanna um Harry Potter þar sem galdrar gefa tóninn og liið hreina hjarta er sigurvegarinn. Hrund Hauksdóttir, ritstjóri Ritstjórar: Jóhanna G. Harðardóttir og Hrund Hauksdóttir, vikan@frodi.is. Útgefandi: Fróði hf. Seljavegi 2, sími: 515 5500 fax: 515 5599. Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson. Aðalritstjóri: Steinar J. Lúðviksson, sími: 515 5515. Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdóttir, sími: 515 5512. Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Gunnhildur Lily Magnúsdóttir, Guðriður Haraldsdóttir og Margrét V. Helgadóttir. Auglýsingastjórar: Ingunn B. Sigurjónsdóttir og Sigriður Sigurjónsdóttir vikanaugl@frodi.is. Grafískur hönnuður: Guðmundur Ragnar Steingrímsson. Verð í lausasölu 459 kr. Verð í áskrift ef greitt er með greiðslukorti 344 kr. á eintak. Ef greitt er með gíróseðli 390 kr. á eintak. Litgreining og myndvinnsla: Fróði hf. Unnið í Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir. Áskriftarsími: 515 5555

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.