Vikan


Vikan - 25.07.2000, Síða 13

Vikan - 25.07.2000, Síða 13
L. nms- www.ms.is MS-Orkumjólk er sérþróuð með það fyrir augum að vera svalandi og hressandi orkugjafi milli mála. Uppistaðan er léttmjólk og því er hún kalk- og próteinrík; hún er bætt með eggjahvítum, vítamínum, þrúgusykri og trefjum og þeytt þar til hún verður flauelsmjúk. MS-Orkumjólk fæst í þremur bragðtegundum: Súkkulaði, jarðarberja og vanillu. Hún er fersk kælivara en með því að beita nýrri framleiðsluaðferð hefur hún þriggja vikna geymsluþol. Framleiðandi er Mjólkursamlagið í Búðardal, en sala og dreifing er í höndum Mjólkursamsölunnar. Orkumjólkin inniheldur engin örvandi efni. Öll næringar- og bætiefni hennar eru náttúruleg og því hentar hún öllum aldurshópum. Hún er tilvalinn drykkur fyrir þá sem eru á ferðinni - umbúðinar eru handhægar og henta til að taka með sér hvert sem er. mmm... flauelsmjúk! Nýja Orkumjólkin er öðruvísi orkudrykkur Það voru Jónsmessutónleikar Selmu sem mörkuðu upphaf markaðssetningar MS- Orkumjólkur 24. júní síðastliðinn. Mikil stemning var í Háskólabíói þennan dag og Selma og hennar aðstoðarfólk var í essinu sínu. [ lokin gaf Mjólkursamsalan tónleikagestunum fyrstum allra tækifæri til að bragða hina nýju vöru því allir fengu kælitösku með Orkumjólk til að taka með heim. Vertu það sem þú ert, virtu það sem þú vilt Mjólkursamsalan hefur gert samning við söngkonuna Selmu Björnsdóttur um að kynna Orkumjólk, nýjan svalandi orkudrykk. Frískleg ímynd Selmu ber vott um heilbrigði og lífsorku; hvort tveggja eru eiginleikar sem falla vel að hinum nýja drykk. Viðlagið úr nýja laginu hennar Respect Yourself er notað í auglýsinga- herferðinni. Textanum var snarað yfir á íslensku og í þeirri útgáfu syngur Selma „Vertu það sem þú ert, virtu það sem þú vilt".

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.