Vikan - 25.07.2000, Qupperneq 20
Opruli þcgar liúii var imj> sliilka oj> lók |>áll í fegiirftarsum-
kcppiii iiiii l)iif>frii svarta Nashvillc árift 1972.
hennar gert mörgum árum
áður.
Daginn sem barnið hennar
dó hét hún Guði sínum og
syni að eitthvað gott skyldi af
þessum hörmungum leiða.
Hún leit svo á að henni væri
ekki ætlað að verða móðir
heldur eitthvað allt annað og
ákvað að nota atburðinn sem
leið til nýs og betra lífs en líta
ekki á hann á nokkurn hátt
sem missi. Hún segir að líf
hennar hefði tekið allt aðra
stefnu ef barnið hefði lifað og
hún hefði eflaust ekki kom-
ist á þá breiðu braut sem hún
nú er á, þar sem hún lætur
gott af sér leiða og reynir
stöðugt að hjálpað fólki.
Oprah heldur því fram að at-
burðirnir, sem áttu sér stað
þegar hún var aðeins fjórtán
ára gömul, hafi verið vísbend-
ing um að það hæfði henni
ekki að verða móðir.
unni frá misnotkuninni, að
föðurbróðir hennar hafi ver-
ið sá síðasti sem nauðgaði
henni og þess vegna hlyti
hann að vera faðir barnsins.
Hver sem í rauninni var fað-
irinn, og Oprah er ef til vill
sú eina sem veit sannleikann,
þá er staðreyndin sú að barn-
missirinn breytti lífi hennar
gjörsamlega. Henni fannst
hún vera orðin eins og
mamma hennar sem eignað-
ist Oprah í synd, þ.e.a.s. ógift.
Oprah hafði haldið þungun-
inni leyndri fyrir öllum og
nefnt síðan alla þá sem hefðu
getað verið feður barnsins.
Það sama hafði mamma
Vill hiálpa börnum
Oprah og unnusti hennar til
margra ára, Stedman Gra-
ham, hafa oft rætt barneignir
en hafa þó aldrei tekið
ákvörðun um að eignast börn
og heldur ekki að giftast. Hún
segir að það að ala barn sé alls
ekki eins mikilvægt fyrir sig
og að hjálpa barni sem er nú
þegar fætt. Þess vegna kem-
ur frekar, og eiginlega aðeins,
til greina að ættleiða barn ef
þau Stedman ákveða að fara
út í að stofna fjölskyldu.
Oprah hefur meðal annars
notað sjónvarpsþátt sinn til
að hjálpa börnum sem hafa
verið misnotuð og hefur lagt
sig alla fram um að berjast
gegn misyndismönnum.
Eftir allar hörmungarnar
tók Oprah sér tak, eins og
áður sagði, og sneri lífi sínu al-
gjörlega við. Henni fór nú að
líða vel hjá föður sínum og
stjúpu. Hún lagði sig alla fram
um að stunda námið vel og
tók virkan þátt í félagslífinu
innan skólans. Þar að auki tók
hún oftar en einu sinni þátt í
fegurðarsamkeppni. Oprah
fór í ríkisháskólann í Tenn-
essee og þar hitti hún fyrstu
ástina sína, William Taylor.
Hún varð svo ástfangin að
þegar henni bauðst starf við
sjónvarpsstöð í Baltimore og
William vildi ekki koma með
henni þangað gerði hún allt
sem hún gat til að fá hann
þangað og gekk jafnvel svo
langt að íhuga að fremja
sjálfsmorð. Svo illa fóru sam-
bandsslitin með hana.
Hugleiddi sjálfsmorð
Ekki leið á löngu þar til
Oprah varð ástfangin á ný. Þá
var hún farin að vinna í
Baltimore og maðurinn, sem
hún elskaði svo heitt í þetta
sinn, var plötusnúðurinn Tim
Watts. Þau áttu ekki vel sam-
an fremur en hún og William
Taylor. Eftir að þau hættu
saman hugleiddi Oprah í ann-
að sinn að fremja sjálfsmorð.
Sem betur fer vann hún sig út
úr þessum erfiðleikum og
besta vinkona hennar, Gayle
King, hjálpaði henni að vinna
bug á þunglyndinu.
Arið 1984 flutti Oprah til
Chicago og fór að vera með
morgunþátt á sjónvarpsstöð
þar í borg. Þetta gerði henni
gott andlega og var það sem
hún þurfti helst á að halda til
að losna við þunglyndið eftir
misheppnað ástarsamband.
Tveimur árum síðar, árið
1986, fór Oprah að vera með
núverandi unnusta sínum,
Stedman Graham.
Oprah hefur deilt með
heiminum frásögnum af erf-
iðri bernsku og æsku en hún
hefur lítið sem ekkert sagt frá
hálfsystkinum sínum Patriciu
og Jeffrey Lee. í þann stutta
tíma, sem hún bjó með Pat-
riciu, hafði hún ekki mikinn
tíma fyrir hana vegna vanda-
málanna sem hún sjálf þurfti
að kljást við og eftir að hún
fluttist til föður síns höfðu
systurnar ekki mikið sam-
band. Patricia hefur átt við
eiturlyfjavandamál að stríða í
langan tíma en segist vera
hætt að misnota lyf í dag.
Oprah hafði ekki hugmynd
um vandamál systur sinnar
fyrr en systurdætur hennar
hringdu í hana og báðu um
hjálp. Hún kom systur sinni í
meðferð og nokkrum mánuð-
um seinna var Patricia kom-
in í blöðin með alls konar sög-
ur af Oprah, líklegast til þess
eins að komast í sviðsljósið.
Oprah varð svo reið að hún
sleit öllu sambandi við Pat-
riciu og stóð það í tvö ár eða
þar til árið 1992 þegar hún
kallaði til fjölskyldufundar
með systur sinni og móður til
að reyna að ná sáttum. Hálf-
bróðir Oprah var ekki á fund-
inum, enda hafði hann látist
úr eyðni tveimur árum áður.
Jeffrey Lee og Oprah voru
ekki samfeðra og Patricia átt
enn annan föður. Oprah sendi
þó móður sinni peninga til að
sjá fyrir bróðurnum. Hann
var samkynhneigður, fékk
eyðni og, eins og Patrcia, not-
aði hann fíkniefni. Oprah
reyndi að koma honum á
rétta braut en allt kom fyrir
ekki. Hann hélt áfram sínum
ólifnaði þar til hann dó.
Stóð sig betur en systkin-
in
Það er ótrúlegt, eftir allt
sem Oprah Winfrey hefur
þurft að ganga í gegnum, að
hún skuli ekki hafa sokkið í
svaðið eins og systkini henn-
ar. Hún hefur þess í stað orð-
ið ein vinsælasta sjónvarps-
stjarnan í Bandaríkjunum og
er einnig feikivinsæl annars
staðar í heiminum. Hún not-
ar þættina sína til að hjálpa
fólki, sem á við alls konar
vandamál að stríða, og geta
allir verið á eitt sáttir um að
hún hafi náð góðum árangri
með starfi sínu. Það leiddi því
svo sannarlega eitthvað gott
af öllum hörmungunum sem
hún sjálf þurfti að ganga í
gegnum, eins og hún hafði
heitið Guði sínum og syni
forðum. Hún er á góðri braut
og á eflaust eftir að hjálpa
mörgum fleiri í heiminum. Og
hver veit nema ein/n af þess-
um mörgu verði lítið, mun-
aðarlaust barn sem Oprah og
Stedman munu ef til vill ætt-
leiða einn daginn.