Vikan - 25.07.2000, Side 23
• ....................f---------------------
Eldhúsið
Settu heimilistækin þín inn í skáp, eins
og hraösuöuketilinn, brauöristina og sjálf-
virku kaffikönnuna. Það erfallegra að hafa
færri hluti en fleiri á eldhúsbekknum. Sum-
ir sanka að sér alls kyns smádóti og punti
eða fá að gjöf og fyrr en varir er ekki leng-
ur smekklegt og sætt í eldhúsinu heldur
ofhlaðið. Smáhlutirnir safna ryki og vinn-
an við að halda öllu hreinu í eldhúsinu
verður of mikil. Hekluð gluggatjöld geta
sett skemmtilegan og gamaldags svip á
eldhús. Þetta eldhús fengi mun fallegri
heildarsvip ef tekið yrði til í hillunum og
matvöru, kryddi og skrautmunum raðað
á smekklegan hátt. Ljósir litir eru bestir I
eldhúsi því þá er auðveldara að halda öllu
hreinu og eldhúsið er sá staður sem allir
vilja að sé hreinn, ekki satt?
Baðherbergið
Það getur lífgað ótrúlega mikið
upp á óspennandi baðherbergi að
setja þarvasa með afskornum blóm-
um við hliðina á vaskinum. Einnig
er hægt að setja fallegt pottablóm
eða silkiblóm þar. Ekki þvo silkiblóm-
in þegar þau fara að rykast því þau
geta látið lit. Hristu frekar af þeim
rykið út um gluggann eða ryksugaðu
þau varlega.
Svefnherbergið
Margir halda því fram að ekkert eigi
að gera í svefnherberginu nema sofa
og elskast. Sjónvarpsgláp eigi heima
í stofunni eða sjónvarpsherberginu,
bóklestur í góðum hægindastól og
vinnan á skrifstofunni. Því er ekki mælt
með því að hafa sjónvarp í svefnher-
berginu og helst ekkert þar nema rúm
og náttborð. Margir eru þó háðir því
að lesa fyrir svefninn og engin ástæða
til að breyta því, sérstaklega ef engin
spennandi hjásvæfa er til staðar.
Kertaljós eru alltaf falleg en þau geta
verið hættuleg, til dæmis ef sofnað er
út frá þeim. Best er að mála svefn-
herbergið í Ijósum og fallegum litum,
gæta þess að lofta vel út svo alltaf sé
hreint loft og ekki of heitt.
Gestaherbergi
Ef þú vilt taka einstaklega vel
á móti næturgestum þínum er góð
hugmynd að fylla meðalstóra
bastkörfu af nokkrum hlutum, s.s.
nokkrum nýlegum tímaritum eða
bókum, ilmsápu, sjampói og hár-
næringu (t.d. í litlum umbúðum frá
Body Shop), tannkremi og tann-
bursta. Ef þú hefur tök á munu
gestir þínir líklega kunna vel að
meta að hafa lítið sjónvarpstæki
eða útvarpstæki hjá sér.
Stofan
Stofur fólks eru yfirleitt hefðbundn-
ar. Sófasett, sófaborð, myndir á veggj-
um, blóm I gluggum og skrautmunir um
allt. Gættu þess að hafa ekki of troðið af
skrautmunum því þá njóta þeir sín ekki,
sama hversu fallegir þeir eru. Margir
láta innramma myndir eftir yngstu fjöl-
skyldumeðlimina og hengja upp á vegg
I stofunni. Að vísu er heilmikill munur
á list þeirra þriggja ára og þeirra sem
eru orðnir átta ára, listaverkum þeirra
síðarnefndu í hag. Þessi mynd er reynd-
ar tekin í bókaherbergi og sýnir m.a.
gamlan sófa sem stendur á móti vegg
fullum af bókum. Þar sem dýrt er að láta
gera upp húsgögn af þessari stærð-
argráöu voru púðar settir ofan á set-
una og ódýrir dúkar yfir, rauður og
grænn. Efri dúkurinn, sá græni heklaði
er úr Hagkaup en blúndudúkarnir á
örmunum úr Rúmfatalagernum.
Gluggatjöldin, innri og ytri, fengust í
Rúmfatalagernum og voru hræódýr en
koma afar vel út.
Borðstofan
Það allra huggulegasta sem þú
getur haft í borðstofunni þinni er fé-
lagsskapur. Bjóddu vinum þínum oft
í mat. Engu skiptir þótt maturinn sé
ódýr og rauðvínið úr kassa, þú nærð
fram huggulegheitunum með góða
félagsskapnum.
Vikan 23