Vikan


Vikan - 25.07.2000, Page 63

Vikan - 25.07.2000, Page 63
Mamman Spá Vikunnar * Hrúturinn 21. mars - 20. apríl Það er eitthvað gott að gerast í einkalífi þínu og þú ættir að nýta þér þær kringum- stæður. Ferðalög eru mjög heppileg. Gættu samt orða þinna, þú gætir lent í illvígum deilum um helgina. Nautið 21. apríl > 21. maí Nú er kominn tími til að dekra við sjálfa(n) sig! Hvernig væri að fara í fjallakofa með elskunni sinni eða skreppa í siglingu á Breiðafirði? Það er rétti tíminn til þess núna og svoleið- is ferðalag gæti orðið þér ógleymanlegt. Tvíburinn 22. maí - 21. júní Þú gætir lent í fínni veislu eða orðið vitni að einhverju mjög sérstöku í þessari viku. Það er einhver ævintýrablær yfir tilverunni og þú skalt vera viðbúin(n) einhverju skrýtnu, jafnvel undarlegu. Krabbinn 22. júní - 23. júlí Það hriktir í sumum krabbahjónaböndum þessa dagana og það gæti verulega reynt á sambandið, jafnvel hjá þeim nýgiftu. Gakktu varlega um gleðinnar dyr og segðu ekkert sem þú gætir séð eftir seinna.. Líónið 24. júlí - 23. ágúst Þetta er allt að lagast! Loksins virðast stjörnurnar ætla að standa með þér í ein- hverju og þá almennilega! Hresstu upp á útlitið og vittu til, - þú ert að klifra upp vinsældalistann hjá einhverjum sem þú vilt svo sannarlega að líki við Þig- Meyjan 24. ágúst - 23. september Það er mikið barnalán yfir þér og þú gætir bráðlega fengið fréttir um að erfingi sé á leiðinni. Annars er einhver frjósemi í loftinu og ef hún er ekki beint líkamleg þá er hugur þinn óvenjufrjór og listamenn í merkinu blómstra um þessar mundir. 4? 24. september - 23. október Þú ættir að fara meira út og gæta þess að loka þig ekki of mikið af frá öðru fólki. Það --------- eru mörg tækifæri í kringum þig en þú ert því miður svolítið svifasein(n) og neikvæð(ur) núna og gætir misst af þeim ef þú opnar ekki augun og lítur í kringum þig. Sporðdrekinn 24. október - 22. nóvember Þeir sem fæddir eru seint í merkinu gætu orðið fyrir einhvers konar vonbrigðum í þessari viku. Hinir verða sennilega meira hissa en leiðir yfir óvæntum fréttum sem þeir fá og snerta þá sjálfa. Bogmaðurinn 23. nóvember - 21. desember Það gæti komið til einhvers konar uppgjörs hjá þér bráðlega. Þú veist sennilega nú þegar hvað er á döfinni en hefur ekki viljað taka á málinu fram að þessu. Þú ert að verða tilbúinn til þess að setja fram þín skilyrði en þú ættir að hlusta vel á aðra. tMC. áb Steingeitin 22. desember - 20. janúar Þú hefur haft nóg að gera undanfarið við að semja við fólk eða reyna að halda frið- inn. Þetta er mánuður stórra ákvarðana og þú hefur enn valið. Hugsaðu bæði með hjartanu og heilanum. Msberínn 21. janúar • 19. febrúar Þig er þegar farið að sundla vegna þess hversu margt er að gerast í kringum þig og enn er engan endi að sjá. Gættu þess að fara eftir leiðbeiningum og að hlusta vel á þá sem _ þér ráð, þú gætir gert afdrifaríka skyssu í þessari vTku ef þú ferð ekki varlega. Fiskarnir 20. febrúar - 20. mars Þú ert afar nýjungagjarn(gjörn) núna og nýtur þess að velta upp hugmyndum og láta gamminn geysa. Þú ættir að fara mikið út á meðal fólks því þú ert hrókur alls fagnaðar hvar sem þú kemur þessa dagana. 03 591 285

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.