Vikan


Vikan - 01.08.2000, Síða 4

Vikan - 01.08.2000, Síða 4
Kæri lesandi W ~Trn daginn hríngdi til m / mín kona. Pessi kona var afar skynsöm og þægileg viðrœðu en hún var í miklu uppnámi og eftir að hafa talað við hana nokkra stund fann ég til undrunar og ein- hvers konar uppgjafar. Það virðist nefnilega vera að ekki sé mikið hœgt að gera við því til- litsleysi sem ríkir þegar um mynd- og nafnbirtingar er að rœða í fjölmiðlum. Þessi ágœta kona hafði setið, ásamt fjölskyldu sinni, fyrir framan sjónvarpið ogfylgst með Kastljósi þar sem ttng hjón, sem fara fyrir Samtökum gegn sjálfsvígum, vont í viðtali. Allt í einu renna myndir afls- Aðgát skal hdfð í nærveru sálar lendingttm sem framið hafa sjálfsvíg yfir skjáinn. Einn þeirra var bróðir konunnar, en hann hafði svift sig lífi um jólin í fyrra. Konan sem ég talaði við var ekki eini œttingi hins látna sem átti andvökunótt í kjölfarið því myndin vakti upp sorg og sársauka þeirra sem vissu afþessu atviki og nœrri má geta hvernig þeim œttingj- um og vinum varð við sem ekki vissu hvernig ípottinn var búið, þar á meðal börnum og unglingum. Það þarf varla að segja það nokkrum manni að þegar ein- hver vehtr þessa leið út úr ör- vœntingu sinni veldttr það ólýsanlegum fjölskylduharm- leik. Þetta er áfall sem erfitt er að sœtta sig við og í mörgum tilfellum er viðkvæmum sálum í nœsta venslahring hlíft við sannleikanum. Þetta œttu þeir sem standa fyrir svona samtökum að vita. Þeir œttu líka að vita að það er ekki nóg aðfá leyfi hjá einum œtt- ingja til að geta verið viss um að myndbirtingin særi engan. Þetta œttu dagskrárgerðar- menn sjónvarps líka að vita. Það eru svo margir sem tengj- ast hverjum og einum og eng- inn veit hversu margir grétu sig í svefn þetta kvöld, né heldur hversu margir máttu svara erf- iðum og kvíðvœnlegum spurn- ingum nœstu daga á eftir. Ég gekk sjálfí þessi samtök þegar þau voru stofnuð og þykist vita að forsvarsmenn þeirra gerðu þetta í góðrí trú. Ég vona nú að þeir geti tekið gagnrýni og lœrt afhenni. Ég er nefnilega ekki (frekar en konan sem talaði við mig) sannfœrð um að myndbirting afþessu tagi hjálpi á nokkurn hátt. Hún vekur athygli þeirra sem ekki hafa gert sér grein fyrír vandanum áður, en það hlýtur að vera til önnur leið með minni fórnarkostnaði. Myndbirting afþessu tagifœhr ekki þá sem eru í sjálfsmorðs- hugleiðingum frá, nema síður sé. Hún er hins vegar vel til þess fallin að sœra þá sem síst mega við því, þ.e.a.s. œttingja og vini sem horfa á bak ástvin- um sínum í vanmætti. Þessi myndbirting þjónar að mínu mati engum tilgangi öðr- ttm en að vekja óhug og sárs- auka saklauss fólks sem ekki er í stakk búið til að breyta neinu og því segi ég: Aðgát skal höfð í nœrveru sálar, myndbirtingar afþesstt tagi eiga engan rétt á sér. En Vikan er komin full af góðu lesefni að vanda, m.a. er hér að finna einstakt viðtal við stúlku sem þjáðist afátröskun- arsjúkdómnum búlímíu, heim- sókn til morgunhananna á Stöð 2, tvœr athyglisverðar lífs- reynslusögur og margar góðar greinar um menn og málefni. Gerðu svo vel lesandi góður og njóttu Vikunnar! Jóhanna Harðardóttir, ritstjóri Ritstjórar: Jóhanna G. Harðardóttir og Hrund Hauksdóttir, vikan@frodi.is. Útgefandi: Fróði hf. Seljavegi 2, simi: 515 5500 fax: 515 5599. Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson. Aðalritstjóri: Steinar J. Lúðvíksson, sími: 515 5515. Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdóttir, sími: 515 5512. Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Gunnhildur Lily Magnúsdóttir, Guðriður Haraldsdóttir og Margrét V. Helgadóttir. Auglýsingastjórar: Ingunn B. Sigurjónsdóttir og Sigríður Sigurjónsdóttir vikanaugl@frodi.is. Grafískur hönnuður: Guðmundur Ragnar Steingrímsson. Verð í lausasölu 459 kr. Verð í áskrift ef greitt er með greiðslukorti 344 kr. á eintak. Ef greitt er með giróseðli 390 kr. á eintak. Litgreining og myndvinnsla: Fróði hf. Unnið í Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir. Áskriftarsími: 515 5555

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.