Vikan


Vikan - 01.08.2000, Side 38

Vikan - 01.08.2000, Side 38
Skilningarvit barnsins þroskast strax í móðurkviði og eins og flestar mæð- ur vita finnur fóstrið fyrir alls kyns utanaðkomandi áreiti. Það getur fundið fyrir því ef móðirin er í miklu upp- námi, það finnur fyrir hreyfingu á legvatn- inu þegar móðirin hreyfir sig og ef hún dans- ar eða hreyfir sig mikið vaggar barnið til í legvatninu og það eykur jafnvægisskyn þess. I fæðingunni fær barnið tilfinningu fyrir líkama sínum sem það hafði ekki áður og það finnur vel fyrir ferð sinni úr leginu nið- ur um fæðingarveginn. Barnið skynjar hljóð og ljós um leið og það er fætt og sumir segja að það skynji hljóð jafnvel þegar það er enn í móðurkviði. Hátt hljóð og sterkt ljós geta komið barninu til að gráta vegna þess að skilningarvit þess þekkja ekki svona mikið áreiti. Ólíkt hinum fullorðnu notar barnið allan líkamann til að skynja sjálft sig og umhverfi sitt. Það finnur fyrir öryggi og festu þegar þú tekur það upp því líkami þess finnur líkams- hita þinn og lyktar- og bragðskyn þess verð- ur virkt um leið og þú gefur því brjóst eða pela. Það má í raun segja að allt sem þú gerir nálægt nýfæddu barni virki skilingarvit þess og tilfinningu þess fyrir sjálfu sér. Þegar skilingarvitin verða virk verður barnið forvitið og reynir að læra á heiminn í gegnum öll skil- ingarvit sín með því að hreyfa sig, horfa í kringum sig, smakka á hlutunum og finna lykt. Það má því með sanni segja að for- vitni sé alls ekki galli þegar ungbörn eiga í hlut. Hægt og sígandi Þótt það sé afar mikilvægt að foreldrar virki skilingarvit nýfædda barnsins síns er nauðsynlegt að gera það hægt og síg- andi. Barnið I Unghörn fæðast með öll skilnlngarult til staðar. Skilningaruítín gefa barninu færi á að kynnast sjálfu sér, sínu nánasta um- huerfi og fólkinu í kringum bað og broska bað og styrkja. For- eldrar geta gert ýmislegt til að uírkja skilingaruít litlu krílanna sinna bannig að bau nái auknum broska og tengíst foreldrun- um sem best. þarf að finna fyrir miklu öryggi og því líður því sennilega best þétt í fangi mömmu eða pabba. Takið barnið alltaf rólega upp og forðist snöggar hreyf- ingar með barnið því slíkt getur ruglað jafvægisskyn þess og gert það óöruggt. Þegar barnið er lagt á skiptiborð er gott ráð að styðja hendi við maga þess allan tímann. Ekki bara til að koma í veg fyrir að barnið fari út af skiptiborð- inu heldur líka til að veita því öryggi. Flestir foreldr- ar kannast sennilega við það að lítil börn baða stundum út höndum eða fótum þegar þau eru lögð niður, t.d. á skiptiborð. Slík viðbrögð eru eðlileg hjá nýfæddum börnum og gefa til kynna að þau séu 38 Vikan texti: Gunnhildur Lily Magnúsdóttir

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.