Vikan - 01.08.2000, Page 39
hrædd. Við hvað eru þau
hrædd? Jú þau eru hrædd við
að detta. Jafnvægisskyn
þeirra er enn svo óþroskað að
ef þau finna ekki fyrir snert-
ingu foreldrisins finnst þeim
þau vera að detta. Þess vegna
er gott að halda við maga
barnsins, sérstaklega ef það
baðar út höndum og fótum, til
að róa það og koma því í skil-
ing um að það sé ekki að
detta.
Ef ljósið í kringum barnið
er of skært lokar það augun-
um og því er gott að dempa
það aðeins til að fá krílið til að
opna augun. Þá er gott að
hreyfa höfuðið fram og til
baka hægt og rólega nálægt
andliti barnsins. Barnið lærir
fljótt að fylgja hreyfingunni
og það eflir sjón þess.
Barnið finnur að sjálfsögðu
mismunandi lykt í kringum
sig en lyktin af móðurinni er
því mikilvægust. Barnið lærir
fljótt að þekkj a þá lykt og hún
veitir barninu öryggi. Það er
því ef til vill ágætt fyrir nýbak-
aðar mæður sem nota ilmvatn
að nota alltaf sama ilmvatn-
ið fyrstu mánuði í lífi barns-
ins.
Til briggja mánaða aldurs
Snertiskynið er afar mikil-
vægt fyrir barnið fyrstu mán-
uðina. Eins og flestir foreldr-
ar vita finnst ungbörnum gott
að láta strjúka bak sitt þegar
þau eiga að ropa og stafar það
fyrst og fremst af því að börn-
in slappa af við það og finna
fyrir öryggi.
Ungbarnanudd hefur ver-
ið að ryðja sér til rúms hér-
lendis á undanförnum árum
og er það af hinu góða. Hæg-
ar strokur og nudd örva og
þroska taugakerfi barnsins og
styrkja tengsl foreldris og
barns.
Foreldrar ungbarna kann-
ast líka vel við það að barnið
róast þegar því er vaggað í
svefn eða það einfaldlega tek-
ið upp og gengið með það um
gólf þar til það sofnar. Þegar
foreldrarnir hreyfa sig á
þennan hátt með barninu
þroskast jafnvægisskyn
barnsins og vöðvar þess. Það
er líka ágætt þegar gengið er
með barnið um gólf að brey ta
um stellingu eða takt því það
örvar enn frekar jafnvægis-
skynið og styrkir vöðvana.
Sjón nýfæddra barna má
örva með því að hengja óróa
eða litsterkar myndir nálægt
því. Einnig er gott að horfa
bara beint á barnið því þá lær-
ir það að þekkja andlit þitt og
einnig lærir það að einbeita
sér að einum punkti.
Barnið lærir fljótt að
þekkja raddir foreldra sinna.
Raddir þeirra vekja öryggi
með barninu og virka róandi
eða jafnvel svæfandi á það,
sérstaklega ef talað er lágt og
rólega til barnsins. Með því
að hækka róminn aðeins eða
tala í annarri tónhæð getur þú
örvað heyrn barnsins og feng-
ið það til að leggja við eyrun.
Smábörn á fullri ferð
Þegar barnið þroskast og
eldist finnst því fátt skemmti-
legra en að busla í vatni. Níu
mánaða gömlu barni finnst til
dæmis ofsalega gaman að slá
í baðvatnið, leika sér með alls
kyns baðdót og reyna að
fanga bununa þegar rennur
úr krana. Á þessum aldri
finnst barninu líka ákaflega
notalegt að fá að striplast að-
eins eftir baðið áður en blei-
an og annað sem heftir það
kemur. Barnið er að upp-
götva líkama sinn og mörgum
smábörnum finnst afar
merkilegt að finna naflann á
sér.
Á þessum tíma byrja flest
börn að standa upp við hús-
gögn og ganga nokkur skref
upp við þau áður en þau taka
fyrstu skrefin óstudd. Þegar
barnið gengur eða skríður á
milli húsgagna þroskast líka
fjarlægðarskyn þess. Fjar-
lægðarskynið má líka þroska
með því að rúlla bolta til
barnsins. Við það eykst líka
samhæfingarhæfni barnsins
sem þarf bæði að horfa á bolt-
ann og taka á móti honum
með höndunum.
Börnum á þessum aldri
finnst líka gaman að láta
halda á sér og lyfta sér upp í
loft. Það eykur jafnvægisskyn
þeirra enn frekar og hvetur
þau til dáða.
Börn á þessu aldursskeiði
skilja mun meira af því sem
foreldrarnir segja heldur en
þau geta látið í ljós með orð-
um. Börnin eru til dæmis fljót
að læra að benda á réttan lík-
amshluta þegar þau eru spurð
spurninga eins og „Hvar er
nefið?“ þótt þau geti ekki
svarað því með orðum.
Matmálstímar með börn-
um á þessum aldri geta oft
tekið á taugar foreldrana sem
vilja e.t.v. helst mata barnið
með skeið. Barnið er hins
vegar örugglega á öðru máli
Lyktar- og liragðskyn ný-
lædds barns verftur virkt uin
leift og því er gefift brjóst.
og vill fá að borða matinn
með höndunum og helst leika
sér svolítið með hann og
maka sig út.
Það ætti ekki að banna al-
gjörlega því barnið fær tilfinn-
ingu fyrir hita og kulda með
því að stinga fingrunum í mat-
inn. Til að koma í veg fyrir
allsherjar upplausn við mat-
arborðið er því upplagt að
mata barnið en leyfa því að
borða einhvern hluta máltíð-
arinnar með fingrunum.
Barnið þarf nefnilega á öllum
sínum skynfærum að halda
svo það þroskist og dafni sem
best.
Vikan
39