Vikan


Vikan - 01.08.2000, Síða 45

Vikan - 01.08.2000, Síða 45
Þórun n Stefánsdóttir þýcldi flækt í hárið á þér. Hann strauk varlega um vanga hennar og reyndi svo að losa burtu óhrein- indin úr hárinu á henni. Það fór hrollur urn hana. Það var eins og hún hefði alltaf þekkt snertingu hans, eins og líkamar þeirra ættu sér sameiginlega for- tíð. Var það ekki einmitt það sem hann hélt fram? Hvernig hafði honum tekist að sá þessum hug- myndum í huga hennar? Hún hefði getað svarið fyrir það að hún væri ekki auðtrúa. Hún hafði alltaf talið sig skynsama konu sem væri með báða fæturna á jörðinni. Maður lærir sífellt eitt- hvað nýtt um sjálfan sig, hugsaði hún og gretti sig. Hann strauk fingrunum eftir vörum hennar og sér til mikillar skelfingar fann hún varir sínar opnast og titra af eftirvæntingu. Marc horfði á hana girndaraug- um og hún horfði taugaóstyrk á móti. Græn augun tindruðu íljós- geislanum frá vasaljósinu. Allt í einu slokknaði ljósið og myrkrið umvafði þau. „Rafhlöðurnar hljóta að vera búnar," hvíslaði hún. „Nei, ég slökkti á ljósinu til þess að spara þær,“ sagði hann og færði sig nær. „Mér er ískalt, það er ef til vill best að við drífum okkur héðan," sagði Annie taugaóstyrk. Hann var allt of nálægt henni og blóð- ið ólgaði í æðum hennar. „Þér fannst alltaf svo gott að liggja í skóginum, í myrkrinu, hjá mér,“ hvíslaði Marc í eyra henn- ar. „Byrjaðu nú ekki aftur! Eg er búin að segja þér að ég trúi ekki orði af því sem þú segir. Þetta er ekkert annað en tímaeyðsla!" „En þá var sumar,“ hélt hann áfram dreymandi. „Langar, heit- ar sumarnætur...“ „Nú er aftur á móti ekki sum- ar og það er ískalt,“ sagði Annie og reyndi að koma auga á andlit hans í myrkrinu. Það eina sem hún sá voru augu hans sem horfðu biðjandi á hana. Augun komu nær. Annie fór aftur að efast um eigin geðheilsu þegar yfir hana helltust óljósar, gamlar minningar. Þetta hafði gerst áður. Hún var viss um það. Nákvæmlega þetta sama. Þau höfðu áður legið í skóginum, á rakri jörðinni, með svartan næt- urhimininn yfir sér. Hún reyndi að muna meira en tilfinningin var þegar að ganga henni úr greipum. Ef til vill hafði aldrei neitt þessu líkt gerst áður. Ef til vill hafði hann sáð þessari hugmynd inn í huga hennar með talinu um heitar sumarnætur. Hún vildi óska þess að hún vissi sannleikann. Var hann að reyna að heilaþvo hana? Var hún veik- geðja og auðtrúa? Var hún bara eins og deig í höndum hans sem hann gat mótað að eigin geð- þótta? Reið og örvæntingarfull reyndi hún að skilja hvað var að gerast. Hún var svo upptekin af þess- um hugsunum að hún tók varla eftir því hvað Marc aðhafðist. Hún vissi ekki fyrr en hann var lagstur ofan á hana og hún fann fyrir heitum vörum hans áður en hún gat snúið sér undan. Hún gleymdi sér í hungruðum koss- um hans, hætti að reyna að berj- ast gegn honum og lagði hend- urnar um hálsinn á honum. Hún titraði þegar heitar hendur hans leituðu undir jakkann hennar og gældu við bert hörundið. Hann vakti hjá henni svo yfirþyrmandi tilfinningar að hana langað mest til þess að gráta. Hún renndi fingrunum í gegnum hárið á hon- um meðan hendur hans struku niður eftir líkama hennar. Hún óskaði þess að þau gætu legið þannig til eilífðar. Hún komst harkalega aftur niður á jörðina þegar hún fann fingur hans strjúka mjúklega á milli læranna á henni. Hún ýtti honum ofsafengin frá sér. „Nei! Þú mátt þetta ekki!“ Hún stundi og skalf eins og hún væri með hitasótt. Marc horfði á hana angistar- fullur. „Annie...“ Rödd hans var djúp eins og hafið. Sama löngunin skein úr augum þeirra beggja. Hún neyddi sig til þess að segja ákveðin: „Nei, ég vil þetta ekki.“ í því kom tunglið fram úr skýj- unum og dauf birtan skein á and- lit þeirra. Annie var náföl. Hún titraði þegar hún hugsaði til þess hversu auðveldlega hann hafði næstum verið búinn að koma fram vilja sínum. Hvers vegna öskraðir þú?“ Hún hefði auðveldlega getað neitað að svara honum en ein- hverra hluta vegna vildi hún það ekki. Hún stóð ráðþrota gagnvart öllu því sem gerst hafði frá því að hún hitti hann flugvellinum og þar til hann hafði komið með „Slepptu mér,“ hvíslaði hún skjálfandi röddu. Hann hjálpaði henni rólega á fætur. Hún skalf svo mikið að hún gat varla gengið. Hún hallaði sér upp að tré og fann tárin brjótast fram. Marc beygði sig niður, tók upp vasaljósið og kveikti á því. Hún lokaði augunum þegar ljósið skein í augun á henni. „Hvers vegna öskraðir þú upp þegar þú komst auga á ljósið?" „Mér brá.“ „I guðanna bænum, Annie, segðu mér satt!“ sagði hann reiði- lega. „Hvers vegna spyrðu ef þú þykist vita sannleikann?" „Vegna þess að ég vil heyra hann frá þér. Þú ert ennþá að reyna að telja þér trú um að ég sé að skrökva. Það eina sem ég fer fram á er að þú viðurkennir fyrir sjálfri þér að vitir innst inni að ég er að segja satt. Byrjum aftur. hana hingað. Henni fannst sem ekkert gæti lengur komið henni á óvart. Hún vildi reyna að kom- ast til botns í þessu máli, vildi fá að tala um það. „Ljósið minnti mig á draum- inn,“ sagði hún. „Ertu þá ánægð- ur? Þegar þú beindir ljósinu að mér var eins og mig væri aftur að dreyma ... það var nákvæmlega eins og í draumnum; skógurinn, myrkrið, ég hljóp og einhver elti mig ... þegar þú kveiktir á ljósinu vissi ég ekki hvort þetta væri draumur eða raunveruleiki og ég fylltist ofsahræðslu." Hún hríðskalf. Marc kveikti aftur á ljósinu, virti hana fyrir sér og hnyklaði brýnnar. „Komdu, við skulum koma okkur heim áður en þú lungna- bólgu.“ Hann lagði handlegginn utan um hana og hún var of máttlaus til þess að mótmæla. Hún hallaði sér að honum og leyfði honum Vikan 45

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.