Vikan


Vikan - 31.10.2000, Síða 48

Vikan - 31.10.2000, Síða 48
Hér klippa Harpa og Lara systurnar Maríu og Mörtu Caruso sem láta fara al- deilis vel um sig í þessum frumiegu „stólum“. Veggir barnahornsins eru skreytt- ir teiknimyndafígúrum sem gefa tilefni til umræðna og geta haldið athygli smá- fólksins frá hinum „hættu- legu“ skærum. Mótorhjól og marglitur bfll auðvelda kligpinguna Grátur og gnístran tanna hefur oft fylgt því þegar fara þarf með smáfólkið í klipp- ingu. Börnin eru óróleg, hrædd við skæri hár- greiðslufólksins og hafa ekki þolinmæði til þess að sitja kyrr á stólnum á með- an verið er að klippa þau. En viti menn það eru til „stólar“ sem börn hreinlega sækja í og sum eru meira að segja farin að biðja um að fara í klippingu til að fá að setjast í þessa stóla. Stólarnir sem börnin sækja svo mjög í eru engir venjulegir stólar heldur mótorhjól og marglitur bíll en það eru tvær ungar hárgreiðslukonur, Harpa Barkardóttir og Lára Jóhannes- dóttir fundu þessa leið til að gera ungum viðskiptavinum sín- um lífið bærilegt meðan þeireru klipptir. Harpa og Lára reka hár- greiðslustofuna Englahár í Langarima 21 í Grafarvoginum og óhætt er að segja að þær hafi sérhæft sig í að sinna unga fólk- inu þótt vissulega komi ekki síð- ur til þeirra aðrir og eldri við- skiptavinir. -Hvaöan kom hugmyndin að þessum frumlegu barnastólum og barnahorninu hjá Englahári? „Ég vann eitt sumar á hár- greiðslustofu í Noregi," segir Lára, „og þarvarsérstakt barna- horn. ( Noregi er mikið um barnastofur sem klippa ein- göngu krakka en svo eru þar líka stofur sem vilja alls ekki fá til sín börn í klippingu. Hugmynd- in að barnahorninu okkar er komin frá þessari stofu en í okk- ar horni er þó miklu meira fyr- ir börnin að dunda sér við held- ur en var þar. Hornið er heldur ekki aðeins ætlað til þess að klippa börnin í, það er ekki síð- ur fyrir þau að leika sér í á með- an foreldrarnireru sjálfir í klipp- ingu. Hér geta þau horft á sjón- varp, leikið sér að kubbum og alls konar dóti." Mótorhjól 09 bíll í stað stóls Harpa segir að þær hafi verið lengi að leita að réttu barna- stólunum en að lokum fengið þá frá Hollandi. Mótorhjóliðerætl- að börnum allt upp í sex til sjö ára aldur en bíllinn er fyrir yngri börn. „Börnunum finnst þetta algjört æði ogsitja hin rólegustu á meðan veriðer að klippa þau.“ Hárgreiðslunemar hljóta enga sérstaka þjálfun eða upp- fræðslu á námstímanum í að sinna börnum. „Þaðerhinsveg- ar heilmikil áskorun og getur verið óskaplega erfitt að klippa krakka," segir Harpa, og Lára bætir við að þar sem Englahár sé í Grafarvogi, í miðju fjöl- skylduhverfi, sé nauðsynlegtað vera undir það búin aðfólk komi með börn í klippingu eða taki þau með sér þegar það ætlar sjálft að láta klippa sig. „For- eldrar hafa haft orð á því hvað sé notalegt að geta slakað hér á og þurfa ekki að hafa áhyggj- ur af börnunum." -Hvers vegna haldið þið að börnum sé svona illa við að láta klippa sig? „Reyndar eru ekki öll börn hrædd en þótt undarlegt megi virðast eru strákar miklu verri hvað það snertir en stelpur. Kannski er það vegna þess að allt frá því þau eru pínulítil er verið að brýna fyrir þeim að skæri séu hættuleg. Oft eru þau líka erfið vegna þessað þeim er ekki gefinn nógur tími. Við för- um eiginlega inn [ heim barn- anna þegar við erum að sinna þeim. Þegar illa gengur tökum við virkan þátt í leiknum með því að láta sem áhöldin breyt- ist í jeppa og alls konar bíla sem þau fá jafnvel að sprauta á og bóna. Maður verður aftur eins og 5 ára á meðan á þessu stendur," segir Lára. Harpa segir að í lokin fái all- ir smáverðlaun. ( upphafi voru verðlaunin sleikipinnar en for- eldrar voru ekki hrifnir af sæt- indunum svo nú eru verðlaun- in smáhlutir úr plasti sem sum- ir krakkar eru meira að segja farnir að safna. „Börn eru mikilvægir við- skiptavinir í okkar augum og við njótum þess að finna að þeim líður vel þegar þau koma til okkar," segja þær stöllur að lok- um. 48 Vikan

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.