Vikan - 31.10.2000, Síða 29
Yngri sonur hans sem var
þriggja ára þá veiktist alvarlega
og lenti inn á sjúkrahúsi.
Ásgeir var skiljanlega mjög
miður sín og flutti aftur heim
til fyrrverandi sambýliskonu
sinnar til að vera henni og eldri
syni þeirra stoð og stytta. Hann
sagði mér eins og var að hann
svæfi í stofunni og sambandi
þeirra væri lokið og það kæm-
ist ekkert að nema veikindi son-
arins.
Sem betur fer braggaðist son-
urinn smátt og smátt og var út-
skrifaður af sjúkrahúsi tveimur
vikum seinna.
En fyrrum sambýliskona Ás-
geirs vildi ekki sleppa af honum
hendinni því hún hafði komist
að því að hann var orðinn ást-
fanginn að mér. Hún ásakaði
hann um framhjáhald þótt við
hefðum aldrei sofið saman og
hann ekki eytt einni nóttu eftir
að hann flutti aftur til sambýl-
iskonunnar hjá mér. Hún hótaði
að hafa allar hans eignir af hon-
um og flytja út á land með börn-
in. Svona gekk þetta í næstum
hálft ár og þrátt fyrir að við Ás-
geir værum ástfangin upp fyrir
haus og hann yndislegur við mig
og dóttur mína varð ég smám
saman afar þreytt á því að vera
,,hin konan".
Ég sleit þvi sambandinu við
hann og sagði honum að hann
ætti bara að halda sig við sam-
býliskonuna og börnin í stað
þessaðsplundra heimilinu mín
vegna. Ég gaf honum ekkert
færi á að svara fyrir sig, hætti í
vinnunni og skellti á hann þeg-
ar hann hringdi.
Mér leið hins vegar hörmu-
lega illa því ég var yfir mig ást-
fanginn af manninum og grét
mig í svefn á hverju kvöldi.
Fimm mánuðum síðar hitti ég
Ásgeir hins vegar aftur á förn-
um vegi og í það skiptið sleppti
hann mér ekki. Hann dró mig
hálfvegis inn á kaffihúsog sagð-
ist enn vera ástfanginn af mér
og spurði mig hvort ég vildi
verða konan sín?
,,En ég er hin konan," sagði
ég hæðnislega og vildi ekki trúa
Lesandi segir
Gunnhildi Lily
Magnúsdóttur
sögu sína
Vilt þú deila sögu þinni meö
okkur? Er eitthvaö sem hefur
haft mikil áhrif á þig, jafnvel
breytt lifi þínu? Þér er vel-
komiö að skrifa eða hringja til
okkar. Við gætum fyllstu
nafnleyndar.
I lc'imiliskingiO cr: Mkan
- „Lífsrcynslusaga", Sdjavcgur
101 Kcvkjavík,
Nctlaiig: vikanOlrmli.is
þvi sem hann sagði. Ásgeir
sagði mér hins vegar að hann
væri búin að greiða úr sínum
málum, fluttur í eigin íbúð og
orðinn helgarpabbi.
Þá áttaði ég mig á því að hon-
um var alvara og tárin fóru að
renna niður kinnar mínar. Ég
kyssti hann fast, tók utan um
hann og við höfum verið sam-
an síðan.