Vikan


Vikan - 14.11.2000, Qupperneq 15

Vikan - 14.11.2000, Qupperneq 15
Auður: „Frá sjónarhóli karlmanna eru tösk- urnar mínar skynsamleg- ustu kventöskur sem fyrir- finnast.“ Guli bakpokinn: Tyggjópakki Fullt af kassakvittunum Gömul blikkdós Gömul peningaveski undir greiðslukort Sígarettur Svarta taskan: Tyggjópakki Snyrtibudda Frumlegt peningaveski. Auður Haralds, rithöfundur og blaðamaður, kemur á óvart þeg- ar hún hvolfir úrtöskunni sinni á borðstofuborðið. Auður er kona margra hluta, eins og heimili hennar ber vitni um, en svo bregður við að töskurnar hennar eru næstum því tómar. ,,Frá sjónarhóli karlmanna eru töskurnar mínar skynsamleg- ustu kventöskur sem fyrirfinn- ast og þar er ég þeim hjartan- lega sammála. I töskunum eru aðeins brýnustu nauðsynjar. Ef ég lenti á eyðieyju eða læsti mig úti gæti ég ekki lifað á því sem kemur upp úr veskinu eins og flestar aðrar konur geta gjarn- an, vikum og jafnvel mánuðum saman. Besta hrós sem ég hef nokkru sinni fengið kom frá manninum á myndbandaleig- unni sem sagði eitt sinn að ég væri eina konan sem hann þekkti sem gæti samstundis fundið allt sem taskan inni- héldi. Á þeim tíma átti ég tösku sem var eins og lítil ferðataska. Þannig töskur eru rúmgóðar og hægt er að geyma í þeim skjöl og matarinnkaup svo ekki sé minnst á bækur. Þannig töskur fástekki lengur, einhverra hluta vegna. í töskunum mínum er allt sem ég þarf; tyggjó, peningar, sígaretturog kort. Plássfrekast- ar eru kassakvittanirnar, ég held þeim til haga til þess að pakka inn tyggjóinu þegar ég er orðin þreytt á að tyggja það. Þetta eru sem sagt fjölnýttir og umhverf- isvænir miðar. Ég er yfirleitt með tvær töskur í gangi, eina sem ég nota dagsdaglega og aðra, þessa svörtu, sem er af stærðinni A4. Ég nota hana undir handrit og snyrtibudduna, sem ég neyðist til að hafa með mér upp á Skjá Einn til þess að mála yfir skemmdirnar. Ég keypti gula bakpokann og aðra tösku appelsínugula, sem ég nota á móti honum, vegna þess að það er svo bjart inni í þeim. Flestar töskur eru svartar eða dökkbrúnar og það er svo dimmt inni í þeim að það er erfitt að finna nokkuð í þeim. Mérfinnst að töskur ættu að hafa sama út- búnað og ísskápar, peru sem kviknar á þegar þær eru opn- aðar. Það myndi auðvelda okk- ur konunum lífið." En hvað finnst Auði um tösk- ur kynsystra sinna svona yfirleitt? Göngum við um með allt of mik- ið drasl? ,,Mér verður iðulega hugsaðtil hryggsúlunnar, vöðva- bólgunnar, slitsins og almennra ellikrankleika sem orsakast af því að bera allt þetta drasl. Tösk- urnar mínar eru léttar og inni- haldsrýrar og ég get líka notað þær sem innkaupapoka þegar ég kaupi í matinn." Auður segist eiga mikið af töskum. ,,Ég á alveg dobíu, margar nokkurs konar barna- töskur og flestar eru þær í glað- legum litum. Svo á ég líka sam- kvæmisveski sem rúmar aðeins sígarettur, lykla og seðlaveskið mitt, sem er þessi gamla sæl- gætisdós sem frönsk vinkona mín gaf mér hérna um árið. Eft- ir að hafa verið rænd nokkrum sinnum meðan ég bjó á Ítalíu gafst ég upp á því að kaupa veski handa þjófum. Nú geymi ég peningana mína í þessari dós. Éghef reyndargerttilraun- ir til þess að kaupa mér seðla- veski en í mínum huga eru þau of margþætt, flókin, stór og þung og yfirleitt eru þau ónýt áður en ég læri að rata um þau. Þar fyrir utan er aldrei nógu góð smápeningabudda í þeim. Dós- in hefur dugað mér ágætlega í tíu ár og ætli ég noti hana ekki bara áfram." Um töskutiltektir hefur Auð- ur þetta að segja: ,,Það er svo sem lítið sem þarf að taka til vegna þess að það er yfirleitt sama og ekki neitt í töskunum mínum. Ég tek reyndar reglu- lega úr þeim bókhaldið til þess að það krumpist ekki undir djúsfernunum." Vikan 15
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.