Vikan - 14.11.2000, Síða 16
í töskunni hans Ingó
leyndust fleiri hlutir
en í töskum þeirra
Hrafnhildar og Auðar
samanlagt. Heimilis-
hundurinn, Oliver, er
greinilega steinhissa
á draslinu.
GSM- sími
Gul minnisblöð
Gleraugnaþurrkublöð
Gamlir lyklar
Filma
Lyf gegn flensu og kvefi
Segulbandsspólur
Nokkur nafnspjöld
Tímarit, gefið er út af
Ferguson Heritage Club
Lyklakippa
Rúðuskafa
Gamalt launaumslag
Penni
Plastpoki undir hundaskít
Gamalt umslag frá
skattstjóra
Handrit að ræðu
Dagbók
Útprentað tölvubréf
Bók um Svíþjóð í EB
Lesendabréf í
Vesturbæjarblaðið
Vesturbæjarblaðið
Atriðalisti og skipulags-
pappírar frá morgunútvarpi
Rásar 2
Okkurgrunaði að konur væru ekki
einarum þaðaðgerasigsekarum
að burðast um með búslóð f tösk-
unni. Þess vegna fengum við
Ingólf Margeirsson, rithöfund með
meiru, til þess að leyfa okkur að
kíkja ítöskunasína. Ogviti menn,
það kom í Ijós aðtaskan hans Ingó
innihélt fleiri hluti en töskur
þeirra Hrafnhildar og Auðar sam-
anlagt.
Hvernig stendur á öllu þessu
dóti, Ingó? ,,Hér kennir nú ýmissa
grasa. Margt af þessu á uppruna
sinn f pappírsríkinu; gulir
minnismiðar sem ég hef alltaf við
hendina ef eitthvað kemur upp á
sem ég þarf að muna, gamalt
launaumslagfrá RÚV, gamalt um-
slag frá skattstjóra, en því miður
man ég ekki skemmtanagildi inni-
halds þess, það er greinilega af-
greitt og týnt fyrir löngu. Hér er
líka ræða sem leynist í töskunni
frá því ég hélt erindi hjá rótarí-
klúbbi um daginn, útprentun af
bréfi sem ég fékk í tölvupósti frá
Gilbert, vini mínum, sem er
þekktur gítarleikari í Englandi,
lesendabréf í Vesturbæjarblaðið,
sem ég ritstýri í einum af mörgum
hjáverkum mínum, atriðalisti og
skipulagspappírar frá morgunút-
varpinu og nokkur nafnspjöld.
Annað má flokka undir smádrasl;
þurrkur til þess að hreinsa gler-
augu, gamlir lyklar sem ég veit
ekki frá hvaða tímabili ævi minn-
ar eru, filma sem ég fór með í
framköllun um daginn og fékk
endursenda, lyf gegn flensu og
kvefi sem ég keypti í Englandi,
gamlarsegulbandsspólur, óátekn-
ar, ég hef greinilega haft of marg-
ar spólur með mér einhvern tíma
þegar ég var að taka upp viðtal
og gleymt þeim í töskunni og (
þessum flokki er líka rúðuskafan
sem Óli H. hjá Umferðarráði gaf
mér og á eflaust eftir að koma sér
vel í vetur. Hér leynist líka merki-
legur hlutur, plastpoki undir
hundaskít sem ég fékk í Bret-
landi. Þar láta borgaryfirvöld
framleiða þessa poka sem hægt er
að fá í hverri einustu sjoppu og á
bensínstöðvum og eru nauðsyn-
legir fyrir þá sem vilja þrífa upp
eftir hundana sína. Þetta fram-
tak er mjög til fyrirmyndar og
mæli ég með því að borgaryfirvöld
í Reykjavík geri slíkt hið sama.
Hér er dagbókin mín sem er al-
veg ómissandi, hún er eiginlega
heilinn minn og í hana skrifa ég
allt sem ég þarf að gera. Hér er
líka bók, Sverige i EU, sem ég
fékk lánaða um daginn í Norræna
húsinu. Ég er á leiðinni til Sví-
þjóðar í boði sænska utanríkis-
ráðuneytisins til þess að kynna
mér hvern ig Svíþjóð vegnar í Ef na-
hagsbandalaginu. Hér leynist
einnig Ferguson tímaritið sem
gefið er út af Ferguson Heritage
Club í Coventry í Englandi. Ég er
meðlimur í klúbbnum vegna þess
að ég á gamlan traktor norður í
Hrísey og hef verið beðinn að
skrifa grein um traktoraeign þar.
Hér er lyklakippan mín með öll-
um lyklum sem ég þarf á að halda
til þess að komast inn og út úr
ýmsum byggingum. Já, og hér er
líka eintak af Vesturbæjarblað-
inu sem einhverra hluta vegna
hefur aldrei komist upp úr tösk-
unni minni, frekar en svo margt
annað, eins og sjá má.“
Blaðamaðurgeturekki stilltsig
um að benda á tilgangsleysi ým-
issa hluta sem í töskunni leynast
og spyr hvort það sé rétt til getið
að Ingó taki sjaldan til ítöskunni.
,, Já, ég viðurkenni að það gerist
allt of sjaldan. Það er aðallega
þegar mér er farin að ofbjóða
þyngdin sem ég fer í gegnum
hana. Ég hreinsa sem sagt eftir
þyngd fyrst og fremst, þegar axl-
irnar og hnén eru farin aðgefa sig.
Marga hlutina nota égdaglega, en
svo er önnur deild í töskunni fyr-
ir hluti sem lenda í töskunni og
fara ekki þaðan fyrr en næst þeg-
ar ég tek mig til og tæmi hana.
Það má líkja þessari tösku við lest-
arstöð, sumar lestirfara reglulega
út og inn af stöðinni, aðrar koma
mjög sjaldan inn og enn aðrar
koma inn og fara ekki þaðan aft-
ur. Ég vil þó fá að segja, sérstöðu
karla til varnar þegar að töskum
kemur, að ég veit nákvæmlega
hvar hver hlutur er í töskunni og
get teygt mig markvisst eftir hon-
um.“
Taskan hans Ingó er stór, svört
og virðuleg og keypt á Heathrow
flugvelli. ,,Mig vantaði nokkurs
konar blaðamannatösku og fannst
þessi sniðug vegna þess að það
er hægt að nota hana fyrir allt sem
tilheyrir starfinu; fartölvu, far-
síma, upptökutæki og Ijósmynda-
vélar. Hún var keypt í þeim til-
gangi en síðan hefur hún þurft
að ,,gleypa“ eitt og annað sem
ekki var ætlað að fara í hana."
16
Vikan