Vikan - 14.11.2000, Side 61
The National Ballet of Canada,
til dæmis í Hnotubrjótnum og
Þyrnirós.
Neve hefur leikið talsvert á
sviði og hlotið lof fyrir en auk
þess og sjónvarpsþáttanna er
hún þekkt fyrir leik sinn í
spennu- og hryllingsmyndum á
borð við Scream 1-3, The Craft
og Wild Things þar sem hún
sýndi nokkuð djarfan leik með
sílikonbombunni og Bondgell-
unni Denise Richards.
Neve gekk upp að altarinu í
fyrsta skipti árið 1995 þegar
hún giftist leikaranum Jeff Colt.
Þau skildu tveimur árum síðar.
Hún býr ein um þessar mundir
í Iúxusvi11u sinni í Los Angel-
es. Auk þess að sinna listagyðj-
unni hefur Neve gaman af
hestamennsku og sundi.
Lacey Chabert leikur yngri
Salinger-systurina, Claudiu,
fjórtán ára gamlan fiðlusnilling
sem veit ekki hvort hún er barn
eða fullorðin kona.
Lacey erfædd þann 30. sept-
ember árið 1982 og er því ný-
lega orðin átján ára.
Hún er sviðsvön stúlka enda
hefur hún leikið á sviði frá því
hún var fimm ára gömul. Hún
lék meðal annars í söngleikja-
útgáfu af „Vesalingum" Vict-
ors Hugos á Broadway og í
tveimur uppfærslum á verkum
Rogers og Hammersteins á
Broadway.
Fæstir vita að Lacey spilar
sjálf á fiðluna í þáttunum ,,Ein
á báti“ enda er hún metnaðar-
fullur tónlistarmaður og hefur
lært á fiðlu frá því að hún var
fjögurra ára gömul.
Hún hefur auk þess leikið í
nokkrum sjónvarpsmyndum,
framtíðarmyndinni ,,Lost in
Space“, talað inn á frægar
teiknimyndir frá Walt Disney,
eins og Anastasia og Lion King
og leikið í nokkrum sjónvarps-
þáttum auk þáttanna ,,Ein á
báti“.
Lacey er fædd í bænum Rur-
vis í Missippi en flutti nýverið
til Los Angeles ásamt tveimur
eldri systrum sínum og yngri
bróður sínum svo hún gæti
sinnt leiklistinni betur.
Auk leiklistarinnar og tónlist-
arinnar hefur Lacey gaman af
því að fara á skauta og að mála.
Hin sykursæta Sarah
Síðast en ekki síst ber að
nefna hina fallegu og hæfileika-
ríku Jennifer Love Hewitt sem
leikur hina skilningsríku Söruh
sem á í nokkurs konar „haltu
mér, slepptu mér“sambandi við
Bailey (Scott Wolf).
Jennifer Love Hewitt er ein af
,,heitu“ ungu leikkonunum í
dag og er nú komin með sinn
eigin sjónvarpsþátt sem fjallar
um sömu persónu og hún leik-
ur í „Ein á báti“.
Jennifer er fædd þann 21.
febrúar árið 1979 í Waco í
Texas.
Hún byrjaði ung í bransanum
og var sett í leiklistarskóla fyrir
börn aðeins fimm ára gömul.
Hún vann fegurðarsamkeppni
ungra Texasmeyja aðeins níu
ára gömul og komst inn í
stærsta dansflokk Texasfylkis
sama ár. Hún ferðast og dans-
aði með flokknum út um víða
veröld, meðal annars í Rúss-
landi, Danmörku og Japan.
Samhliða dansinum lék
Jennifer í mörgum auglýsingum
og var meðal annars andlit LA
Gear íþróttavöruframleiðandans
og Mattel-leíkfangafyrirtækisins
í nokkur ár.
Hún lék í fjölda framhalds-
þátta á unglingsárunum og
nokkrum þekktum kvikmynd-
um, meðal annars „Sister Act
2“ með Whoopi Goldberg og
„House Arrest."
Eftir að hún byrjaði að leika
í þáttunum „Ein á báti“ árið
1996 hefur frægðarsól hennar
risið hratt og hátt og hún með-
al annars leikið í tveimur fræg-
um hryllingsmyndum, „I know
what you did last summer" og
„I still know what you did last
summer."
Auk þess hefur hún gefið út
einn geisladisk þar sem hún
söng þekkta ástarsöngva enda
þykir stúlkan hafa seiðandi og
fallega rödd.
Vikan 61