Vikan

Tölublað

Vikan - 15.02.1973, Blaðsíða 52

Vikan - 15.02.1973, Blaðsíða 52
Áður flaug hugurinn og farfuglarnir. Nú flýg ég suður — í sól og hvíld — þangað leitar hugurinn í skammdeginu. Fleiri og fleiri átta sig á hve einstök tækifæri bjóðast nú til að njóta sumarbliðu, hressingar og skemmtunar meðan veturinn rikir hér í norðri. Eftir sex tlma þotuflug i hásuður erum við komin til Kanaríeyja úti fyrir Afríkuströndum. Þar er sumarveður allt árið — synt í sjónum og legið á baðströndum. Og ótal margt annað um að velja: Skoða mannlífið, náttúruna eða næturlífið, eða verzla — kaupa á spönsku verði. Eyjarnar hafa um langan aldur verið mikil viðskiptamiðstöð og til þess tekið hve verðlag er þar hagstætt. Og svo er einnig hægt að skreppa til Afriku. Við höfum þrjá íslenzka fararstjóra á Gran Canaría og sex mismunandi dvalarstaði til að velja um í 15 eða 22 daga. Flogið er tvisvar i mánuði til loka aprilmánaðar, verð frá 21.000 krónum. FARPANTANIR HJÁ SKRIFSTOFUM FLUGFÉLAGSINS OG UMBOÐSMÖNNUM ÞESS.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.