Vikan - 15.02.1973, Blaðsíða 6
FLORENCE GABIN
sem er nítján ára gömul og dóttir
hins fræga franska leikara Jeans Ga-
bin, Var aðstoðarstúlka framleiðanda í
kvikmyndum, sem faðir hennar lék í
og gegnum vináttu hans við leikstjór-
ann Michel Audiard fékk hún hlut-
verk í kvikmyndinni „Elle Cause plus,
elle Flingue". Annie Girardot lék að-
alkvenhlutverkið og hún eggjaði Flor-
ence til að snúa sér að leiklistarnámi,
en það vill Florence ekki, hún er ánægð
með sitt starf sem aðstoðarstúlka
(script-girl).
PRINSESSA Á HÆKJUM
Það mátti sannarlega ekki tæpara
standa með þýzku prinsessuna Hanne-
lore Auersperg, þegar bíll hennar lenti
í árekstri á dögunum. Lengi var prins-
essunni ekki hugað líf, en nú er hún
komin yfir það versta og hefur fengið
að fara heim af sjúkrahúsinu, eftir
yfir hundrað og níutíu daga legu þar.
Hún verður þó enn um ófyrirsjáan-
legan tíma að ganga við hækjur.
Bíll prinsessunnar var illa útleik-
inn eftir áreksturinn, en logsuðu-
tæki þurfti til að ná henni út úr flak-
inu. — meðfylgjandi mynd yfirgefur
Hannelore sjúkrahúsið í fylgd yfir-
læknisins þar, móður sinnar og eigin-
manns síns, Alfi prins von Auersperg.
SEAN CONNERY
var orðinn hundleiður á að leika
007, svo hann er mjög ánægður nú,
þegar framleiðendurnir hafa fundið
annan til að leika þetta hlutverk, nefni-
lega Roger Moore, sjálfan Dýrðling-
inn. Aður höfðu framleiðendurnir elt
hann um heiminn þveran til að særa
hann til að halda áfram með hlut-
verkið. Nú er Sean Connery í La
Mancha á Spáni og unir sér vel við að
leika golf.
EINN KEMUR ÞÁ ANNAR
FER
Kvikmyndaleikarar virðast ekki taka
nærri sér hjónaskilnaði og láta sér
ekki detta í hug að sitja heima og
syrgja. Leikstjórinn Harry Mayer sást
fara inn á næturklúbbinn „Le Privé“
í París með ljóshærðri fegurðardís. En
hann var ekki þangað kominn til að
hitta fyrrverandi eiginkonu sína, Ro-
my Schneider, sem þó var á staðnum.
Hún virtist una sér vel, enda var herr-
ann hennar Bob Evans, framleiðand-
inn að „Love Story“ og fyrrverandi
eiginmaður Ali MacGraw. Nú eru
menn að stingja saman nefjum um
það hvort hinn glæsilegi framleiðandi
sé ekki að hugsa um að fá Romy í
næstu kvikmynd sína. Meyer vildi
ekki láta uppskátt nafn þeirrar ljós-
hærðu.
ekkja Humphreys Bogart, er nú orð-
in 48 ára og hefur nú fundið nýjan
vin í Frakklandi, franska tízkumeist-
arann Ungaro. Það er sagt að Laureen
Bacall sé ein af ríkustu kvikmynda-
stjörnunum í Ameríku. Áður en hún
fór til París, var hún viðstödd minn-
ingarhátíð um hinn fræga eiginmann
sinn. Blaðaljósmyndarar voru ekki
lengi að koma auga á hana og hlupu
til. En Laureen tók því vel og hafði
ekkert á móti því að þeir smelltu af,
þar sem hún var að fara inn á skemmti-
stað með hinum franska vini sínum.
LAUREEN BACALL
SÍÐAN SÍÐAST