Vikan

Tölublað

Vikan - 15.02.1973, Blaðsíða 3

Vikan - 15.02.1973, Blaðsíða 3
7. tbl. - 15. febrúar 1973 - 35. árgangur Vikan Skelfing í Skaftár- eldi „Soltnar tófur skjótast þjófalega á milli beina- grindanna, og strífjaðrað- ir hrafnar flögra yfir þeim. Þetta er eina lífs- markið, sem fyrir okkur ber á þessari eyðimörku dauðans". Sjó „Skelfing í Skaftóreldi" á bls. 12. Myndir frá Þingeyinga- móti Það var þröng á þingi í salarkynnum Hótel Sögu hér ó dögunum, þegar Þingeyingafélagið í Reykjavík minntist 30 óra afmælis sins með veglegu hófi. Við birt- um margar myndir af veiziugestum í miðopnu þessa blaðs. Eyjar viS enda regnbogans Þegar gígurinn á Tristan da Cunha gaus fyrir ellefu árum, var allt fólkið flutt til Englands. Þó sáu íbúar eldfjalla- eyjunnar umheiminn í fyrsta sinn. En það.var síður en svo, að þeir kynnu að meta menn- inguna. Sjá grein á bls. 18. KÆRI LESANDI! „Heima við* bæinn er enginn maðnr á ferli. Þeir, sem enn eiga þar beima, eru illa til þess færir að vera úti við á gangi, encla ekk- ert út að gera, því að allar skepn- ur ern dauðar fyrir löngu. — Við Iwörflum austur í kirkjugarð. Þar er sorglegt um að litast. All- ur garðurinn er samfelld mold- arhrúga og i henni sér sums stað- ar á klúrar líkkistur. Menn geymdu lík þeirra, sem dóu í sókninni í hverri viku, til næsta sunnudags. Þái gengu allir vinnu- færir menn að því að taka eina gröf handa öllum, stundum 6—8 líkum í einu. Mátturinn var lítill hjá mörgum til að berja upp klakann, en það vannst þó er margir lögðu saman. Þegar niður i'ir klakanum var komið, var grafið innundir klakahelluna til beggja handa. 1 þessar gryfjur var líkkistunum raðað og klaka- hrönglinu mokað yfir. Nú er klakaþekjan sigin niður, og sum- ar kisturnar standa hálfar upp úr moldinni...“ Þannig lýsir Jón Trausti að- komunni að Kirkjubæjarklaustri í Skaftáreldi, einhverju mesta gosi, sem sögur fara af í nokkru landi. Eldgosið í Vestmannaeyj- um hefur eðlilega beint hugan- um til hamfara náttúrunnar fyrr á öldum. Kjör og aðstæður hafa gjörbreytzt til batnaðar, en nátt- úran er söm við sig. — Við birt- um kafla úr „Sögum frá Skaftár- eldi" á bls. 12. EFNISYFIRLIT GREINAR BLS. Skelfing í Skaftáreldi, kafli úr „Sögum frá Skaftáreldi" eftir Jón Trausta, sem byggðar eru á raunverulegum staðreyndum 12 Eyjar við enda regnbogans, grein um Trist- an da Cunha, eyjuna, sem ibúarnir urðu að flýja vegna eldgoss fyrir ellefu árum 18 Fanginn á lögmannsskrifstofunni, grein um óvenjulegt sakamál, fyrsti hluti 8 Verðbólga i öllu sinu veldi, grein um efna- hagshrunið í Þýzkalandi fyrir stríð, en nú eru fimmtíu ár liðin síðan eitt brauð kostaði milljónir marka 23 Þröng á Þingeyingamóti, myndir frá þrjá- tiu ára afmæli Þingeyingafélagsins í Reykja- vik 26 SÖGUR Úrsmiðurinn reglusami, smásaga eftir Ger- ald Sinstadt 16 Eilíf æska, framhaldssaga, 9. hjuti 20 Skuggagil, framhaldssaga, 12. hluti 34 ÝMISLEGT 3M — músik með meiru, poppþáttur í um- sjá Edvards Sverrissonar 32 „Flestir vilja feita sneið". — Visnaþáttur Vik- unnar 11 FASTIR ÞÆTTIR Pósturinn Síðan síðast Mig dreymdi Myndasögur 43, 46, 49 Stjörnuspá Krossgáta 48 50 FORSÍÐAN Elizabet Taylor hefur löngum verið talin feg- ursta kona heims, og þessi mynd af henni styð- ur sannarlega það álit. I þetta sinn hefur hún sótt hugmyndina að hárgreiðslunni til hundsins síns. VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Matt- hildur Edwald og Kristín Halldórsdóttir. Útlits- teikning: Sigurþór Jakobsson. Auglýsingastjórar: Sigríður Þorvaldsdóttir og Sigrfður Ólafsdóttir. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Siðumúla 12. Símar: 35320 - 35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 75,00. Áskriftarverð er 750 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega eða 1450 kr. fyrir 26 tölublöð hálfsárslega. Áskriftar- verðið greiðist fyrirfram. Gjalddagar eru: nóvem- ber, febrúar, maí og ágúst. 7. TBL. VIKAN 3

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.