Vikan


Vikan - 19.12.1957, Side 11

Vikan - 19.12.1957, Side 11
eftir <e i ■ dansa opinberlega. Foreldrar mínir höfðu óskað sér drengs í þetta skipti, en ég held þau hafi samt ekki orðið allt of von- svikin þegar ég kom í staðinn. Þau skírðu mig Frances — Frances Gumm. Þegar ég var þriggja ára, heimtaði ég að fá að troða upp eins og systur mínar. Og kvöld nokkurt bar pabbi mig út á leik- sviðið, þar sem ég söng „Jingle Bells“, sem var eina lagið sem ég kunni. Ég varð að endurtaka það fimm sinnum! Svo bar pabbi mig út af sviðinu. En upp frá því var ég orðin „söng- kona“. Upp úr þessu skiptum við liði. Mamma og pabbi tróðu upp ein og við systurnar höfðum sérstakan söng- og dansþátt. Þegar mamma og pabbi voru á sviðinu, sátum við stúlkurnar meðal áhorfenda og klöppuðu eins og við gátum. Og þegar okkar þátt- ur byrjaði, voru þau mamma og pabbi komin niður í salinn og klöppuðu eins og þau gátu. Hafi ég einhverja hæfileika, þá eru þeir meðfæddir. Enginn sagði mér hvað ég ætti að gera á leiksviðinu. Þetta kom af sjálfu sér. Enn þann dag í dag þekki ég ekki nóturnar. En þessi „menntunarskortur" minn hafði í för með sér sterka minnimáttarkennd, sem hefur fylgt mér fram á þennan dag. Mig vantaði öryggistilfinningu. Eg gat aldrei verið viss um, að ég bæri mig rétt að — og er, það ekki ennþá. Sem kvikmyndaleikkona hafði ég ekki hugmynd um, hvernig ég stóð mig, fyrr en myndatökunni var lokið og ég gat séð árangur- inn á sýningartjaldinu. Þegar ég kom fram í Palace leikhúsinu í New York fyrir fimm árum, kann að vera að áheyrendum hafi sýnst ég vera örugg og ákveðin. En það var eitthvað ann- að. Mér leið hörmulega. Ég var sannfærð um, að ég kæmi ekki upp einu einasta hljóði, sannfærð um að enginn kærði sig um að hlusta á mig, sannfærð um að ég væri búin að vera sem söng- og leikkona, eins og svo margir höfðu fullyrt. Ég get bætt því við, að þegar fagnaðarlætin byrjuðu, lang- aði mig mest af öllu að fara að skæla og faðma fólkið að mér niðri í salnum og syngja fyrir það til eilífðar. Árið 1927 keypti pabbi leikhús í Lancaster í Californíu. Á leiðinni vestur efndum við til skemmtana í hverjum krók, sem státaði af samkomuhúsi. Þetta voru ógleymanlegir dagar. Við vorum öll í svo skínandi góðu skapi. Framtíðin brosti við okk- ur. Þar sem ég var minnst okkar systra, stóð ég í miðið þeg- ar við sungum. Þegar mgr fannst þær ekki nógu fjörugar, átti ég það til að kitla þær eða klípa í miðjum söngnum. Stundum setti að okkur svo mikinn hlátur, að við urðum að flýja út af leiksviðinu áður en þættinum var lokið. I Chicago vorum við systurnar auglýstar sem „Glum-syst- ur“. Við mótmæltum harðlega. Maðurinn, sem varð fyrir svör- um, sagði að Glum væri þó skömminni skárra en Gnmm og stakk upp á því, að við fyndum okkur nýtt nafn. Hann vildi að við kölluðum okkur Garland í höfuðið á vini hans Robert Garland, sem var leiklistargagnrýnandi World-Telegram í New York. Við höfðum aldrei heyrt Robert Garland nefndan og höfð- um ekki hugmynd um hvað World-Telegram var. En við viss- Hér erum við systumar. Röðin er þessi: Judy og Jimmy. Suzy, I>arna er ég — og tveir fyrstu mennimir minir. David (með glasið) er að heilsa upp á okkur Vincente. um, að leiklistargagnrýnendur voru miklii' menn og því féllumst við á þetta. Um þetta leyti var ég líka byrjuð að kalla sjálfa mig Judy. Fjölskyldan kallaði mig enn ,,Baby“, en ég vandi hana af þessu með því að ansa ekki nema ég væri ávörpuð með nýja nafninu. Við bjuggum í Lancaster í níu ár. Það voru erfið ár. Fólkið í Lancaster var lítið gefið fyrir að sækja leikhús. Þarna byrj- aði ég að ganga í skóla, og þarna hefði ég víst loksins átt að eignast einhverja vini. En það þótti ennþá ófínt að vera „trúð- ur“ og ég var höfð útundan í skólanum. En nú komu forlögin til sögunnar. Ég var að sendast fyrir mömmu, þegar ég rakst inn í matsal veitingahúss nokkurs. Það var um kvöld. Við eitt borðið sátu nokkrir menn, en salurinn var auður að öðru leyti. Hóteleigandinn kannaðist við mig og spurði, hvort ég vildi syngja eitt lag fyrir mennina. Ég sagð- ist vera að flýta mér, en hann hélt að eitt lítið lag mundi lítið tefja mig. Einn mannanna sagðist kunna dálítið á píanó. Hvað vildi ég syngja? Ég spurði hálft i gamni og hálft í alvöru, hvort hann kynni „Dinah“. Hann brosti. „Það hugsa ég,“ sagði hann. „Ég er höf- undurinn.“ Maðurinn var Harry Akst, og hann var raunar höfundur þessa heimsfræga lags. Nokkrum dögum síðar var hringt á mömmu frá Columbía kvikmyndafélaginu og hún beðin um að koma með mig í kvik- myndaverið. Maðurinn sem hringdi hét Lew Brown og var einn af forstjórum félagsins. Hann hafði verið viðstaddur þeg- ar ég söng „Dinah“. Ég söng fyrir nokkra menn hjá Colum- bia, en þeim fannst hvorki til né frá um hæfileika mína. Upp úr því kynnti Lew mig fyrir A1 Rosen, sem var umboðsmaður ýmsra leikara og söngvara í Californíu. Hann fór með mig í hvert einasta kvikmyndaver fylkisins. En enginn virtist.trúa á hæfileika mína nema Al, Lew og fjölskylda mín. Ég var ekkert undrabarn og ég var engin feg- urðardís. Ég var bara ósköp venjuleg tólf ára gömul stúlka með hressilega söngrödd. Svo gerðist það, að pabbi fór með mig til Metro-Goldwyn Mayer. Og þar skeði kraftaverkið. Mennirnir hjá Metro voru ekki frá því, að ég hefði einhvern snefil af hæfileikum, og réðu mig. Seinna fannst mér ákaflega vænt um það, að pabbi skyldi vera viðstaddur þegar ég skrifaði undir fyrsta kvikmyndasamn- inginn minn. Þar með var kvikmyndaferill minn hafinn. Og þótt ég vissi það ekki þá, átti ég eftir að sjá á bak pabba fyrr en varði. Hann dó úr mænusótt. Kvöldið áður en hann dó, söng ég í útvarpið með A1 Jolson. Rétt áður en útsendingin hófst, hringdi læknir pabba, sem líka var bezti vinur hans, til mín og bað mig að standa mig, því að pabbi ætlaði að hlusta. Þá vissi ég, að hann var að deyja, því að hann hafði verið veikari en svo að hann mætti hafa útvarpstæki inni hjá sér. Ég söng til hans og fyrir hann þetta kvöld. Og um morguninn var hann látinn. Framháld á blaðsíöu JfO. VIKAN 11

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.