Vikan


Vikan - 19.12.1957, Blaðsíða 15

Vikan - 19.12.1957, Blaðsíða 15
VIÐ VBLJUM VERA MEÐ! ALLRA augu beindust að Tiger Moth flugvélinni, þegar hún hóf sig til lofts á flugsýningunni. Hún brunaði fram flugbrautina, lyftist frá jbrðu, hnitaði hringi yfir áhorf- endum og hækkaði stöðugt flugið. I þrjú þúsund feta hæð sást brúnklædd vera stíga út á ann- an vænginn og halda sér þar. Þetta var augnablikið, sem þúsundirnar á jörðu niðri höfðu bcðið eftir — fallhlífarstökkið. Brúnklædda veran hnipraði sig saman, húkti þannig andar- tak, steypti sér síðan aftur á bak út af vængnum, út í tómið. Hún snerist í hring, féll eins og steinn gegnum loftið, sífellt hraðar, eins og svört ör. Áhorfendur héldu niðri í sér andanum. Ætlaði fallhlífin ekki að opnast? Var eitthvað að? En loksins þandist fallhlífin út, óx eins og hvítt blóm á himinhvolfinu, og fall brún- klæddu verunnar stöðvaðist. Fallhlífarmaðurinn sveif heilu og höldnu til jarðar og áhorfendur þustu til hans til þess að fagna honum. Og ráku þá upp stór augu. Því að þegar ofurhuginn tók ofan flughjálminn, kom í ljós, að þetta var stúlka — og óvenjulega lagleg stúlka í 'þokabót! Hún heitir Sue Burger og er 22 ára gömul. Hún er af írsk- um uppruna, en ólst upp í Bretlandi. Hún er skrifstofu- stúlka að atvinnu. En uppá- halds tómstundaiðja hennar er að stinga sér út úr flugvélum; hún virðist hafa af því svipaða skemmtun og aðrar stúlkur af dansleikjum eða bíóferðum. Þegar þetta er ritað, hefur Sue stokkið meir en þrjátíu fallhlífarstökk, þar á meðal eitt í sjóinn. Hún er fyrsta kon- an i Bretlandi, sem öðlast rétt til þess að kenna fallhlífar- stökk. Hvert stökk kostar hana um 75 krónur, en hún sér síð- ur en svo eftir peningunum. „Þetta er unaðsleg tilfinn- ing,“ segir hún. „Maður er eins og fuglinn fljúgandi. Maður er aleinn í heiminum, og veröldin breiðir úr sér við fætur manns eins og teppi. Það jafnast ekk- ert á við þetta.“ Kannski. Eða kærir sig ein- hver um að reyna? Sú var tíðin, að það þótti í frásögur færandi ef kvenmaður ók bíl. Sumstaðar vakti það jafnvel hálfgert hneyksli. En það er orðin breyting á þessu — og heldur betur! Hinar ungu stúlkur nútímans eru orðnar leiðar á því, að menn meðhöndli þær eins og postulínsbrúður. Þær eru að taka sér stöðu við Það er kjörorð .. nútímakonunnar ... Og hún lætur ekki sitja við orðin tóm! SUE BURGER „Eins og fugl- ( inn fljúgandi" hlið karlmannanna — hvort sem þeim líkar betur eða ver. Kjörorð þeirra er að verða: „Það sem þeir komast, það komumst við líka.“ Stundum kæra þær sig meira að segja ekkert um karlmanns- fylgd á glæfraferðum sínum. Tuttugu og eins árs gömul stúlka að nafni Ruth Thede — skrifstofustúlka að atvinnu SPURIMINGIN ER: 'CÖ 1. Reykirðu meir en tíu sígarettur á dag? .......................... 5 2. Rýkurðu upp, ef hlutirnir eru ekki á sínum stað og þú þarft að leita að þeim? ............... 4 3. Áttu bágt með að hafa hugann við það sem aðrir segja í sam- ræðum ? 5 4. Sýður gremjan i þér þegar bíó- gesturinn fyrir aftan þig getur ekki setið kyrr ? .......... 3 5. Ertu bálreiður út i bíla sem ausa ryki i allar áttir? ........ 4 6. Hefurðu hálfgerðan ímugust á fólki sem jórtrar tyggigúmmí í návist þinni? ................. 3 7. Styttirðu þér nokkurntíma stundir við að semja skamm- arbréf til yfirvaldanna — i hug- anum ? ..................... 4 8. Verðurðu fokvondur ef einhver fer fram fyrir þig í biðröð ? 3 9 Getur drjúpandi vatnskrani kom- ið þér í uppnám? .............. 4 10. Geturðu nefnt einn eða tvo menn, sem þú þolir alls ekki í návist þinni? .............. 4 11. Getur lykt af ýmsu tagi komið þér úr jafnvægi? ................ 3 12. Getur sami hluturinn hneyksl- að þig árum saman? .............. 3 © £ E 3 •o tí 3 4-1 m Taugaveiklaður eða taugahraustur Því dæmist rétt vera: Ef einkunn þín er hærri en 32, þá þarftu að gjörbreyta lifi þínu. Það kann að láta einkenni- lega í eyrum, en innra ástand þitt jaðrar við sinnisveiki. Reyndu að komast I vinnu, sem hæfir betur hæfileikum þínum og viðhorfum. Reyndu umfram allt að komast að þvi, hvað veldur við- kvæmni þinni. Þá aðeins geturðu snúist til varn- ar. Fimmtán til 31. Þér er gjarnt að fara hinn gullna meðalveg. Þú villt komast hjá því að standa I erjum við fólk, af því „það tekur um of á taugarnar." En reyndu að vera ekki allt of ákafur og óþolinmóður. Þú munt uppgötva, að „kemst þótt hægt fari." Og þú munt sennilegast afkasta meiru, þótt skrýtið sé. Undir 15. Ef þú býrð I borg og færð samt ekki hærri einkun en þetta, stendurðu þig alveg ágætlega. Þú ert taugasterkur. Þú lætur ekki umhverfið kúga þig. Þú kallar semsagt ekki allt ömmu • þína. eins og Sue — fór í sumar á bát fljótaleiðina frá Calgary til Winnipeg í Kanada. Vega- lengdin er um 1400 mílur. Og hún fór ein, nema hvað hún hafði Storm, hundinn sinn, með sér. „Ég er með dálítið sigg í lófunum eftir róðurinn," tjáði hún fréttamönnum í leiðarlok. „En þetta gekk alveg ljómandi. Stormur var ágætis ferðafélagi, þó að hann raunar svæfi megn- ið af leiðinni.“ Bandaríska stúlkan Kathy Maclean var líka ein síns liðs þegar hún fór í rannsóknaleið- angur upp í Himalaya-fjöll. Þó hafði hún litla reynslu af f jalla- ferðum. Brezk stúlka að nafni Jean- nie MacCullum lagði fyrir skemmstu upp í ferðalag kring- um hnöttinn — allslaus. „Hér er svo mikil deyfð yfir öllu,“ sagði hún um England. „Hér bíða manns engin æfintýri.“ Jeannie er seytján ára og ætl- ar að vinna fyrir sér á leið- inni. Hve lengi býst hún við að verða í hnattferðinni ? Hún hef- ur ekki hugmynd um það. En kringum jörðina ætlar hún, hvað sem það kostar. Stundum tekst stúlkunum að fá þannig vinnu, að æfintýrin koma að sjálfu sér. Eins og til dæmis Moira Dunbar frá Edin- borg. Hún er landfræðingur að mennt. Hún var í níu vikur eina konan á ísbr jót, sem sendur var í könnunarferð til kanadiska heimskautssvæðisins. „1 fyrstu virtust sumir karl- mannanna um borð hafa horn í síðu mér,“ sagði hún við heim- komuna. „En svo sættu þeir sig við þetta, garmarnir.“ Þá má ekki gleyma Olgu Deterding, sem erfði milljónir, en lét sér fátt um finnast og Framhald á bls. 43. VIKAN 15

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.