Vikan


Vikan - 19.12.1957, Qupperneq 43

Vikan - 19.12.1957, Qupperneq 43
Konungurinn af Róm Framhald af blaðsíðu 9. María Lovísa, fyrrv. keisarafrú, mátti ekki einu sinni vera að því að vaka hjá syni sínum nóttina sem hann dó. — hertogafrúar af Parma. Föður átti hann engan. Þetta gamla skjal sýnir betiu- en flest annað hvem hug Mettemich bar til sonar Napoleons. Þó tókst honum aldr- ei að þurrka minninguna um föðurinn úr huga sonarins. Þegar fregnin um dauða Napoleons á St. Helenu barst til hirðarinar í Vin árið 1821, skipaði keisarinn svo fyrir að nú skyldi dóttursonur hans fá að vita sann- leikann um upprima sinn. Það kom í hlut liðsforingja að nafni Foresti að útskýra málið fyrir prinsinum. Seinna sagðist honum svo frá í 'bréfi, að þá hefði hann séð konunginn af Róm úthella fleiri tár- um en hann hefði búizt við af dreng,“ sem aldrei hafði séð föður sinn og aldrei þekkt hann.“ Þannig óx prinsinn upp. Tungumál virt- ust liggja sérlega vel fyrir honum og hann sýndi mikinn áhuga fyrir sögu — einkum styrjaldarsögunni. En skapgerð hans virt- ist skorta allt jafnvægi. Stundum sökkti hann sér ofan í viðfangsefnin af áhuga og kappi, en þess á milli var hann deyfðar- legur og kjarklaus. Hann fór þess hvað eftir annað á leit við keisarann, afa sinn, að hann fengi að ganga í herinn, en Metternich þótti ekki -ráðlegt að sleppa af honum hendinni og láta hann eignast félaga. Hann var hræddur um að pilturinn mundi njóta allt of mikillar Lylli vegna föður síns og varpa skugga á hann sjálfan. Aðgerðarleysið varð til þess að „andinn þrozkaðist á kostnað líkamans,“ eins og læknirinn hans orðaði það. Drengurinn spíraði upp í loftið, en brjóstkassinn virt- ist ekki stækka að sama skapi, og hann var óeðlilega fölur og veiklulegur. Að lok- um fór svo að hann var alltaf hálflasinn, og læknirinn reyndi að vinna bug á las- leikanum með því að neyða hann til að synda mikið og taka tíð böð. Þannig óx hann upp eins og aðgerðarlaus fangi. Loks neyddist afi hans til að láta und- an heitustu ósk hans og leyfa honum að ganga í herinn. Það kom nú í ljós að ótti Metterniehs var ekki ástæðulaus. Á ör- skömmum tíma varð hann vinsælasti liðsforinginn í Vín. Þegar hann reið um götumar, þyrptist fólkið út í gluggana til að dást að þessum glæsilega hefðar- manni. Það sýnir bezt hvílíkr- ar hylli hann naut meðal al- mennings, að nú komst það í tízku að ganga með hanska með áþrykktri mynd af hertogan- um af Reichstadt. Um það leyti sem hann gekk í herinn, brauzt júlíbyltingin út í París. Múgurinn óð um göturnar og hrópaði: „Lifi Napoleon II.“ Og byltingar- menn létu ekkert tækifæri ónotað til að minna á erfða- prinsinn í Vínarborg. Dag nokkurn þegar prinsinn gekk upp tröppurnar á húsi kennara síns, greip ung kona hönd hans og kyssti á hana. Hver getur hindrað mig í að kyssa á hönd drottnara míns,“ sagði hún. Þarna var komin ein af hinum fjölmörgu frænk- um prinsins, sem hafði í hyggju að fá hann til að flýja með sér til Parísar. Það leið ekki á löngu áður en Mettemich sá svo um að henni væri vísað úr landi. Skömmu seinna kom opinber sendimað- ur frá flokki Bonapartista í austurríska sendiráðið í París og spurðist fyrir um það, hvort Mettemich mundi fáanlegur til að láta prinsinn koma að frönsku landa- mærunum, þar sem 100.000 þjóðvarðar- liðsmenn mundu taka á móti honum. Nú hófust víðtækar og langvinnar samninga- umræður, en áður en þeim var lokið, hafði brotizt út í prinsinum brjóstveikin, sem lengi var búin að búa um sig í honum. Og 22. júlí 1832 andaðist hann eftir langa og erfiða sjúkralegu, aðeins 21 árs gamall. Til eru mörg málverk og teikningar af prinsinum á banabeðinu. Móðir hans hafði loks látið telja sig á að koma frá Parma, en nóttina sem búizt var við að hann mundi deyja, vakti hún ekki hjá honum. Hún var ekki sótt fyrr en undir morgun, þegar hann kallaði grátandi: „Kallið á mömmu, kallið á mÖmmu mína.“ Þegar hún loks kom, hafði hann ekki lengur sinnu á neinu. Hann var spurður hvort hann vildi láta biðja bænar og hann kink- aði kolli. Þegar presturinn þagnaði, tók hann síðasta andvarpið. Ferðamenn, sem koma til Vínarborgar, koma gjaman í Schönbrunhöll. Þar er til sýnis dauðagríma hertogans af Reichstadt, eins og hann hét þar í landi, ásamt upp- stoppuðum fugli, einasta vininum sem hann átti. Hann hafði fundið fuglinn vængbrotinn. Og komi þeir í grafhvelfinguna undir Kapucinakirkjunni, sjá þeir rétt við hlið- ina á kistu Frans keisara auðan stall, undan líkkistu. 1 þessari hvelfingu hvíla Habsborgararnir hlið við hlið. Hjörtu þeirra eru þó geymd í gullskrínum í Ágúst- ínusarkirkjunni og innyflin í katakomp- unum undir Stefánskirkjunni. Konungurinn af Róm fékk ekki frekar að hvíla í friði í gröf sinni en hann fékk að dafna og þrozkast í friði í lifenda lífi. I yfir hundrað ár fóru Frakkar árangurs- laust fram á að fá jarðneskar leifar hans fluttar heim, en Austurríkismenn sögðu að aldrei hefði verið hróflað við gröfum Habsborgaranna. Auk þess hvíldi p:ltur- inn þarna innan um ættmenn sína. Þetta varð Frökkum mikið tilfinningamáL Upp úr aldamótunum síðustu lék leikkonan fræga, Sarah Bemhardt, æfi og örlög konungsins af Róm á leiksviði í París, við afbragðs viðtökur áhorfenda. Leikritið hét Amarunginn. Loks leystist deilan með óvæntum en ekki að sama skapi viðkunnanlegum hætti — fyrir hvorugan aðila. Sá sem þar kom til sögunnar hét Adolf Hitler. 1 þekkingar- leysi sínu á mannlegt eðli hélt hann að hann gæti keypt vináttu Frakka með stolnum beinum. Hann gerðist því grafar- ræningi og lét flytja kistu konungsins af Róm til Parísar eftir að hann hafði náö, báðum löndunum á sitt vald. Frakkar tóku við gjöfinni, en þökkuðu hana ekki. Og í Austurríki kallaði Hitler 'yfir sig megna fyrirlitningu með þessu tiltæki. Því þó báðar þessar þjóðir hafi nú losað sig við keisara sína, þá bera þær virðingu fyrir keisaraöldinni. Þannig stendur á auða stallinum í graf- hvelfingunni í Vínarborg, og þannig stendur á því að Frakkar láta sem minnst bera á tinkistunni í Invalides og hafa ekki hátt um það hvernig hún er þangað kom- m. E. Pá. NUTIMAKDNAN Framhald af bls. 15. gerðist ólaunaður starfsmaður í holds- veikranýlendu mannvinarins dr. Schweitz- er í Lambarene í Afríku. I fyrrahaust fór hún við fjórða mann í bíl þvert yfir Sahara. Hún fékk mýraköldu og á sjúkrahúsinu las hún um mannúðar- starf dr. Schweitzers. Þegar hún komst á fætur, hélt hún rakleitt á fund hans. Und- anfarna níu mánuði hefur hún unnið sem aðstoðarstúlka í eldhúsi holdsveikraný- lendunnar. Veikara kynið ber ekki lengur nafn sitl með rentu. Satt að segja eru áhöld um, hvort það er ekki ósvikin fölsun. Hvað til dæmis um Therese Leroy, sem er lagleg og glaðlynd frönsk móðir. Mað- urinn hennar hefur það að atvinnu að gera við húsþök og reykháfa. Hann er kvadd- ur til, þegar verkið er of erfitt og áhættu- samt fyrir venjulega viðgerðarmenn. Afsakið — hann er kvaddur til . . . . og svo Therese konan hans. Því að hún hefur unnið við hlið hans þrjú undanfar- in ár. Hún byrjaði á þessu, þegar einn af að- stoðarmönnum hans var kvaddur í herinn. Eftir nokkum tíma uppgötvaði hún að henni féll vinnan ágætlega og að hún var auk þes ekkert lofthrædd, þegar maður hennar var nálægt henni. Þó er ekki laust við, að hrollur fari um mann, þegar hún er að lýsa vinnunni. Vinnupallarnir rísa oft tugi metra fró jörðu. Stundum er jafnvel ekki hægt að, koma þeim við, og þá verður að. nota^! við stóla, sem hengdir em utan í bygg- inguna eða reykháfinn, og stiga. En Therese hlær og segir: „Þetta er barnaleikur. Þegar það byrjar að bresta í reykháfnum, festir maður sig með krók við stigann og bíður og sér hvað verða vill.“ Og hún yptir dömulega öxlum, brettir upp kragann á samfestingnum sínum og byrjar að fikra sig upp stigann. — VIC ALDISS. VIKAN 43

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.