Menntamál - 01.01.1945, Blaðsíða 5
MENNTAMÁL
XVIII., 1
JANÚAR
1945
FREYSTEINN GUNNARSSON, skólastjóri:
Sannleikurinn
mun gera yður frjálsa
Úr ræðu við setningu Iíennaraskólans 19Uh.
Síðan við lukum hér störfum síðast í vor hafa mörg
og mikil tíðindi gerzt. Svo að segja á hverjum degi í allt
liðlangt sumar hafa stór-
fregnir borizt utan úr heimi
frá hildarleiknum mikla. —
Blóðugum sporum þokast
þjóðirnar nær markinu
milda, marki friðar og frels-
is undan hinu ægilega ófrið-
aroki. Enn eru mörg spor
og crðug óstigin. En ein-
hvern tíma kemur sá lang-
þráði dagur, að vopnin
þagna og styrjaldargnýrinn
deyr út eins og óveðurshljóð
í fjarlægð. En þá koma eft-
irmálin. Þá mun enn reyna
á kappann, þegar á þann
hólm kemur að greiða úr
allri þeirri flækju og um-
turnun, sem styrjöldin hefur skapað í sambúð og viðskipt-
um landa og þjóða í milli. Enginn maður sér ennþá út
yfir óleystu verkefnin, sem fram undan bíða.
TÁUDSBÓKASArTÍ'
N'h i62552
fSLANbS
Freysteinn Gunnarsson