Menntamál - 01.01.1945, Blaðsíða 14
10
MENNTAMÁL
Um þetta leyti hafði nýr maður tekið við forstjórn
málleysingjastofnunarinnar dönsku, Jens Peder Trap (f.
1810, d. 1885), leyndarráð að nafnbót, en stjórnarráðs-
ritari að starfi (1856—1884). Hann hafði einnig forystu
um málefni blindra manna, og reyndist hinn skyldurækn-
asti við þessi störf sín eins og önnur, sem honum var
trúað fyrir. Hann var mjög handgenginn konungunum,
einum eftir annan, var t. d. í fylgd með Kristjáni 9.,
þegar hann kom hingað þjóðhátíðarárið 1874.* Þarf ekki
að efa, að það hefur fyrst og fremst verið að hans ráð-
um, hve vel erindi séra Páls var tekið, enda styrkti hann
Pál jafnan síðan í starfsemi hans í þágu málleysingjanna
eftir því, sem hann fékk við komið.
Hinn 4. september 1867 var séra Páli veitt leyfi til að
kenna mállausum og heyrnarlausum börnum á íslandi.
Gefur Trap forstjóri honum þá þann vitnisburð, að hann
hafi ,,aflað sér svo mikillar þekkingar og æfingar í kennslu
mállausra og heyrnarlausra, að það mundi mega fela
honum á hendur að kenna mállausum og heyrnarlausum
börnum á íslandi“. Jafnframt vekur forstjórinn athygli
stjórnarinnar á því, að íslenzk börn hafi ekki eins mikil
not af kennslunni í danska skólanum og æskilegt væri.
Nefnir hann einkum tvær ástæður til: 1) Börnin læri
dönsku í skólanum, en ekki íslenzku, og séu næstum því
eins aumlega einstæðingsleg innan um fólkið, þegar þau
komi heim aftur, og þó þau hefðu enga menntun öðlazt.
2) í skólanum „sé allt svo ólíkt því, sem þau áður hafa
vanizt og aftur eigi að hverfa til, að sjálfsagt fá af þeim
muni geta orðið eins ánægð og nýt til sýslunar sinnar,
eins og þau hefðu getað orðið, ef þeim hefði ekki verið
svipt burt úr átthögum sínum; og við þetta bætist loks,
*) 'J’rap leyndarráð var einn af stofnendum Hins konunglega
danska landfrœðifélags og samdi nákvæma Danmerkurlýsingu, Stalis-
tisk-topografisk Beskrivelse af Kongeriget Danmark, mikið rit og
vandað, 5 bindi, 1856—59.