Menntamál - 01.01.1945, Blaðsíða 32
28
MENNTAMÁL
Tveir nýir skólar norðanlands.
I nýútkomnu hefti af Heimili og skóla skrifar Snorri Sigfússon
námsstjóri nm tvo nýja skóla. Farast honum svo orð meðal annars:
„Eitt hið glæsilegasta skólaheimili í sveit er nú risið og að fullu
reist í einum minnsta hreppi Eyjafjarðarsýslu, Árskógshreppi. Var
jiar hafizt handa fyrir 6 árum, þótt aðalframkvæmdirnar féllu á
mestu dýrtíðarárin. Auk kennslustofa, kennarabústaðar og heimavist-
arherbergja, er sambyggður við skólahúsið mjög stór og fullkominn
leikfimi- og samkonmsalur, og á þvf byggingin að þjóna ltæði þörf
barnanna og hinna eldri. En þannig er þessu fyrir komið, að skólinn
er algjfirlega út af fyrir sig í byggingunni og hitt, er að samkomum
og notkun eldra fólksins snýr, einnig sér um allt. Þetta er höfuð-
kostur, því að samkrull allt um skóla og samkomur er óheppilegt ....
Þá liefur einnig á hinum síðustu missirum risið veglegt skólaheimili
við Barðslaug í Fljótum. Hafa þar þrír aðilar verið að verki: Haga-
neshreppur, ríkið og kvenfélagið á Siglufirði, sem notar heimilið
fyrir dvalarstað siglfirzkra barna á stimrin. Er þetta hið prýðilegasta
heintili, sem vantar þó enn fimleikasal. Að þessu heimili ganga þau
börn, sem næst búa, en hin eru þar í heimavist ....
Þessi tvö nýbyggðu skólaheimili í svcitum .... eru gleðilegur vottur
um vaxandi skilning á því, að farskólahaldið, sem enn er víðast
hvar drottnandi í sveitunum, er með öllu óviðunandi til frambúðar.
Víða er orðið mjög erfitt með húsakost, og öll aðstaðan er víða hin
aumasta, enda tolla sæmilegir kennarar Jtar illa, cn stöðug kennara-
skipti eru mjög óheppileg fyrir alla aðila. Þetta þurfa allir að skilja
og reyna úr að bæta, og úrbótin mun alls staðar reynast sú eina
skynsamlega, er Árskógshreppur, Haganeshreppur og ýmsir fleiri
hreppar, einkunt sunnanlands, hafa ]teg:,ir hrundið í framkvæmd, að
byggð séu skólaheimili á tilteknum stöðum, og gangi Jjangað ]>au
börn, sem næst búa, en hin hafi þar heimavist. Framtíðin mun sýna
og sanna, að þetta fyrirkomulag er ltið eina, sem unandi er við í
strjálbýlinu til frambúðar."
Skólastjóri Árskógsstrandarskólans er Jóhannes Óli Sæmundsson, en
skólastjóri skólans við Barðslaug er Ólafur Magnússon.
ÚTGEFANDI: SAMHAND ÍSLEN7KRA líA RNAKENNAKA.
Útgáfustjórn: Ingimar Jóhannesson, Arngríntur Kristjánsson,
Ólafur Þ. Kristjánsson, ritstjóri.
Prentsmiðjan ODDI h.f.