Menntamál - 01.04.1945, Síða 22
100
MENNTAMÁL
og Kipling. Óhætt mun að fullyrða, að þetta er hentug
bók fyrir þá, sem vilja kynna sér úrval enskra ljóða.
The Teaching of English as a Second Language, eftir
I. Morris, B. A, 136 + VIII bls., verð 3 sh. (í bandi).
Nafn bókarinnar segir til um efni hennar. Hún er ætluð
kennurum. í henni er gerð grein fyrir ýmiss konar mark-
miði tungumálanáms og síðan fyrir einstökum þáttum
námsins, sem kennarar leggja mismunandi áherzlu á, svo
sem kunnáttu í málfræði, tali, lestri eða ritleikni, en það
er mjög komið undir tilgangi kennslunnar, á hvern þess-
ara þátta ber að leggja mesta áherzlu. Ekki er neinni sér-
stakri kennsluaðferð haldið fram í bókinni, heldur er iðu-
lega vitnað til sérfræðinga, er andstæðar skoðanir hafa
haft á þeim efnum, og þeir látnir færa fram rök fyrir
kenningum sínum og jafnframt gagnrýna kenningar and-
stæðinganna. Höfundurinn virðist gera sér far um, að
leggja viðfangsefnið sem allra greinilegast og skýrast
fyrir kennarana, sem bókin er ætluð, og verður ekki annað
séð en bókin sé hin þarfasta handbók öllum þeim, er við
enskukennslu fást, og getur reyndar gefið kennurum, er
kenna önnur erlend mál, margar nytsamar bendingar,
því að margt í henni á við öll tungumál og alla tungumála-
kennslu. Er ritstjóra Menntawáia ekki með öllu grunlaust
um, að sumu því, sem þarna er að vikið og athygli vakin
á, sé ekki alltaf gaumur gefinn í tungumálakennslu hér á
landi.
Macmillan & Co. Ltd. í London hefur gefið báðar þessar
bækur út.