Menntamál - 01.08.1961, Blaðsíða 43
MENNTAMAL
121
rúmfræði, rúmteikningu, jöfnum, merkjamáli, föllum
(functions), töflugerð og línurita). Þessi frumatriði
reiknings verða æ drýgri þáttur í fleiri og fleiri starfs-
greinum.
3. Reikningur, með þeim hugsunarmáta sem hann skap-
ar, ætti að vera mikill þáttur í uppeldi hvers manns nú
á tímum, jafnt þótt störf hans verði hvorki á sviði tækni
né vísinda. Reikningskennslan, nátengd kennslu annarra
fræða, ætti að opna augu nemenda fyrir hlutdeild reikn-
ingsins í vísindalegri lífsskoðun og heimsskoðun vorra
tíma.
Rúm á stundaskrám.
5. Reikningur, sem er ein höfuðgreina í öllum bekkj-
um framhaldskóla, þarf að njóta nægs tíma á stunda-
skrám.
7. Æskilegt er að nemendum, sérlega vel föllnum til
reikningsiðkana, sé veitt aðstaða til aukins reikningsnáms,
bæði með sérstakri námsskrá og bættri aðstöðu til heima-
náms.
9. Alls staðar, þar sem reikningur er skyldunámsgrein,
ætti að telja hann meðal höfuðgreina, og gæta þess að
prófeinkunnir í reikningi séu jafn mikilvægur þáttur við
flutning milli bekkja og á vottorði um lokapróf og reikn-
ingurinn er í kennslunni.
Námsskrár.
11. Reikningsnámsskrár verða að fylgjast með þróun
vísindanna, tækninnar og lifnaðarháttanna, og kasta burtu
úreltum hlutum. Því skyldi veitt sérstök athygli, að nokkr-
ar þjóðir hafa aukið námsskrár sínar með ákvæðum um
kennslu í analytskri rúmfræði, infinitesimalreikningi og
statistik, og um aukna kennslu um funksionir og vektora,
sem og hagnýtingu reiknings.
13. Æskilegt er að námsskeiðum sé svo hagað að kennsl-