Menntamál - 01.08.1961, Blaðsíða 13
MENNTAMÁL
91
þetta tímabil, og skal ég nú leyfa mér að víkja lauslega
að því efni nokkra stund.
II.
Fyrsta árið, sem háskólinn starfaði, voru skráðir stú-
dentar 45 talsins, en í upphafi háskólaársins 1960—1961
voru þeir 780. Þótt tekið sé tillit til fólksfjölgunar, hefur
átt sér stað stórfelld hlutfallsleg fjölgun á háskólastú-
dentum á þessu tímabili. Sama er uppi á teningnum, þegar
litið er á fjölda kennara. Við upphaf fyrsta háskólaársins
voru prófessorar 9, dósentar 2. Nú eru 84 prófessors-
embætti við skólann, en dósentar eru alls 15 og lektorar 6,
og eru þá ótaldir ýmsir aukakennarar. Fjölgun á prófess-
orsembættum stafar sumpart af nýjum kennslugreinum,
sem upp hafa verið teknar, og sumpart af fjölgun á pró-
fessorum við upphaflegu deildirnar.
Eins og kunnugt er, hefur háskólinn aukið miklu við
upprunalegt starfssvið sitt á þessu nærfellt 50 ára skeiði,
bæði með því að stofnað hefur verið til kennslu í nýjum
kennslugreinum og með því að eldri kennslugreinarnar
hafa verið gerðar fjölbreytilegri og víðtækari en áður var.
Enn fremur er þess að geta, að ýmsar rannsóknarstofn-
anir hafa risið upp og tengzt háskólanum, og hefur háskól-
inn átt frumkvæði að stofnun flestra þeirra.
Af nýjum kennslugreinum má nefna kennslu í verk-
fræði, sem til var stofnað haustið 1940, en verkfræðideild
var ekki lögfest fyrr en 1944. Fyrstu stúdentarnir (7), sem
þar stunduðu nám, luku fullnaðarprófi í byggingaverk-
fræði héðan frá háskólanum, en upp frá því hefur deild-
in aðeins veitt kennslu til fyrrahluta prófs í verkfræði.
Hafa stúdentarnir stundað síðarahluta nám við erlenda
háskóla, flestir við verkfræðiháskólann í Kaupmannahöfn,
en sú vinsemd, sem sú stofnun hefur sýnt Háskóla íslands
með þessu, verður seint fullþökkuð.
Þá var hafin kennsla í viðskiptafræðum á árinu 1941,