Menntamál - 01.08.1961, Blaðsíða 103
MENNTAMÁL
181
efni falla undir menntamálaráðuneytið og þarfir sérfram-
færslunnar, sem lýtur stjórn félagsmálaráðuneytisins.
Þannig hafa tvö ráðuneyti samvinnu um þennan þátt kenn-
aramenntunarinnar. Kennarar í hjálparbekkjum eru líka
menntaðir á námsskeiðum í kennaraháskólanum.
Svíþjóð.
Svíar hafa menntað sérkennara sína á ýmsum náms-
skeiðum hingað og þangað, líkt og tíðkazt hefur í Noregi.
Sameiginleg námsskeið fyrir kennara í hjálparbekkjum
og kennara vangefinna barna hafa verið haldin í Stokk-
hólmi og Gautaborg. Lengi hefur þó ríkt óánægja um
þessa skipan og samband sænskra sérkennara hefur þrá-
faldlega lagt til og unnið að því, að komið væri á fót
Specialpedagogisk institut. Frá 1. okt. síðastliðnum fól
fræðslumálastjórnin Helmer Norman umsjón með mennt-
un kennara í hjálparbekkjum, lesbekkjum, athugunar-
bekkjum sem og kennara tornæmra barna, og hefur hann
rektorsnafnbót.
Finnland.
Árið 1959 komu Finnar allri menntun sérkennara fyrir
við kennaraháskólann í Jyváskylá, undir stjórn Niilo
Máki. Þar ljúka menn sérkennaraprófi að undangengnu
almennu kennaraprófi og tveggja ára kennarastarfi. Sér-
kennarapróf veitir rétt til að starfa í hjálparbekkjum, at-
hugunarbekkjum og öðrum sérbekkjum.
Vestur-þýzlca sambandslýðveldið.
I Vestur-þýzka sambandslýðveldinu er frábærilega vel
séð fyrir menntun sérkennara, og Hamborg hefur þar for-
ustuna, en þar er kostur á fjögurra ára sérnámi. Algeng-
ast er þó, að sérkennarar njóti tveggja ára menntunar.
Allir sérkennarar skulu hafa lokið almennu kennara-
námi, en það er þriggja ára nám eftir stúdentspróf.