Menntamál - 01.12.1967, Síða 18
206
MENNTAMÁL
góðvildar þeirra sem áður, en jal’nframt munu líka kennaraefn-
in sem fyrr mannast af því að kynnast því sem í skólanum ger-
ist. — ]>annig verða ekki dregin skýr mörk milli Kennaraskólans,
Æfingaskólans og annarra skyldnámsskóla í landinu.
Laganefnd Kennaraskólans var skipuð 29. febr. 1960. Formað-
ur hennar var Freysteinn Gunnarsson. Aðrir nefndarmenn
voru Ágúst Sigurðsson, Broddi Jóhannesson, Guðjón Jónsson,
Gunnar Guðmundsson, Helgi Elíasson, Símon Jóhann Ágústs-
son og Sveinbjörn Sigurjónsson.
Nefndin gerði drög að lagafrumvarpi, og er menntamálaráðu-
neytið hafði fjallað um það, var skipuð ný nefnd til þess að
vinna betur að undirbúningi þess með sérstöku lillili til fram-
haldsnátns kennara viö Hásltóla íslands. Formaður nefndarinn-
ar var Birgir Thorlacius ráðuneytisstjóri. Aðrir nefndarmenn
voru Ármann Snævarr háskólarektor, Helgi Elíasson fræðslu-
málastjóri, Kristinn Ármannsson rektor, Freysteinn Gunnarsson
og Broddi Jóhannesson.
Nefndin atlmgaði frumvarpið á mörgum fundum og gerði á
því veigamiklar breytingar í sambandi við menntadeildina. Þá
fól hún Jteim Guðmundi Arnlaugssyni menntaskólakennara,
Halldóri Halldórssyni prófessor, Freysteini Gunnarsyni og
Brodda Jóhannessyni að gera tillögur um námsefni, prófkröfur,
stundafjölda og annað fyrirkomulag væntanlegrar menntadeild-
ar Kennaraskólans.
Þessum mönnum flyt ég Jrakkir skólans.
Ráðuneytisstjórinn Birgir Thorlacius vann af alúð og atorku
að undirbúningi löggjafarinnar, og hann hefur jafnan verið
reiðubúinn að styðja sem greiðasta framkvæmd hennar. Ár-
mann Snævarr hafði forgöngu um afgreiðslu málsins innan há-
skólans, og Jrakka ég honum og háskóladeiklunum öllum fyrir
að hafa gefið sér tóm til að skila álitsgerðum um tillögur nefnd-
arinnar.
Síðast en ekki sízt leyfi ég mér að flytja hæstvirtum mennta-
málaráðherra dr. Gylfa Þ. Gíslasyni Jrakkir Kennaraskólans á
þessum tímamótum.