Menntamál - 01.12.1967, Page 65
MENNTAMÁL
253
áherzlu á, að undinn verði bráður bugur að því að leysa kennslumál
sveitanna á viðunandi liátt með byggingu heimavistarskóla fyrir skyldu-
námið, þar sem þeirra er þörf.
Kennarafélag Mið-Vesturlands.
Aðalfundur Kennarajélags Mið-Vesturlands var haldinn að Laugar-
gerðisskóla, Snæfellsnesi, laugardaginn 30. sept. og sunnudaginn I.
okt. 1967.
Sigurður Helgason, skólastjóri, setti fundinn og bauð fundarmenn
velkomna til fundarstarfa.
Erindi á fundinum fluttu:
Þórleifur Bjarnason námsstjóri: ávarp um skólamál.
Björn Bjarnason dósent: tölur og mengi.
Stefán Ol. Jónsson námsstjóri: starfsfræðsla.
Gestur Þorgrimsson kennari: liægri umferð.
Á laugardagskvöldinu var kvöldvaka, sem séra Árni Pálsson, for-
maður skólanefndar Laugargerðisskóla, stjórnaði. Að lokinni kvöld-
vökunni þágu fundarmenn kaffiveitingar í boði skólanefndarinnar.
Fráfarandi stjórn félagsins skipuðu: Sigurður Helgason, Gísli
Kristjánsson og Rósa Björk Þorbjarnardóttir, öll við Laugargerðis-
skóla.
I stjórn félagsins til næsta árs voru kjörnir Sigurður R. Guðmunds-
son skólastjóri, Leirárskóla, Gunnar Höskuldsson, Leirárskóla og
Þorgils Stefánsson, Akranesi.
Fundinn sátu 60 félagsmenn og voru eftirfarandi ályktanir ein-
róma gerðar:
1. Kennaraskorturinn.
Fundurinn telur, að meginorsakir kennaraskortsins séu ol lág laun,
lélegur aðbúnaður, vanmat á starfi kennarans. Verði ekki bráðlega
úr þessu bætt sé framtíð íslenzku þjóðarinnar, jafnt efnalega sem
menningarlega, stefnt í voða.
2. Kennaramenntun.
Fundurinn lýsir undrun sinni og vanþóknun yfir þeim seinagangi,
sem ríkir varðandi stofnun æfingaskóla við Kennaraskóla íslands, og
telur æfingakennslu við skólann ekki fullnægjandi. Fundurinn telur,
að Kennaraskólanum beri á hverjum tíma að leita að og ráða til starfa