Menntamál


Menntamál - 01.04.1970, Síða 7

Menntamál - 01.04.1970, Síða 7
verndarsjónarmið og sömuleiðis einstaklings- bundinnar kennslu með tillili til hæfileika og þarfa hinna einstöku nemenda.“ Samræmd sérkennsla Það er lögð áherzla á þá meginreglu, að nem- endur með námsörðugleika skuli vera kyrrir í venjulegum bekkjum — að svo miklu leyti sem tök eru á, en þörfinni á einstaklingsbundinni hjálp beri að fullnægja með „kompletterande" eða „stödjande" sérkennslu, þ. e. samræmdri sér- kennslu. Samræmd sérkennsla er fólgin í því, að sérkenn- arinn fæst við kennslu eins eða fleiri nemenda á sama tíma og bekkjarkennarinn kennir öðrum nemendum bekkjarins. Þessi sérkennsla fer fram annað hvort í kennslustofu bekkjarins, í aðskild- um leskrók eða í sérstaklega útbúinni kennslu- stofu, svokiilluðu lesveri (skolklinik). Gert er ráð fyrir, að sumir fatlaðir nemendur þurfi sérstök tæknileg lijálpargögn við nám sitt í venjulegum bekk, en eigi auk þess kost á sér- stakri persónulegri aðstoð auk sjúkraþjálfunar og sállækningar (medicinsk och psykoterapeutisk behandling). Náið samstarf kennara bekkjarins, sérkennar- ans og annars þess starfsliðs skólans, sem vinnur að nemendavernd (elevvárd), er talið nauðsyn- legt, svo hægt sé að fá heildarsýn yfir örðugleika nemandans. Verkefni sérkennarans er fyrst og fremst að gera greinandi rannsóknir og fram- kvæma sérkennsluna út frá þeim, en auk þess semur hann þjálfunar- og námsáætlun fyrir nem- andann til nota í almenna bekknum. Til þess að geta fylgzt nteð framför nemand- ans gerir sérkennarinn rcghdega atlniganir og skrásetur þær, til þess að fá trausta undirstöðu undir nákvæma umsögn sína um nemandann við lok skólaársins, en á þessari umsögn er áætlun um frekari kennslu byggð. Matið á því, hve mikil áhrif örðugleikarnir hafa á árangur skólanámsins, verður að vera ákvarðandi um eðli og umfang hjálparinnar. Til dæmis getur það verið fullnægjandi fyrir nemanda með minni háttar greindarskort að gera kennsluna einstaklingsbundnari með því að beina námi hans í bekknum að léttari og hlut- lægari verkefnum en aðrir fást við í samræmi við þaullnigsaða námsáætlun. Kannski er engra annarra ráðstafana þörf með tilliti til takmark- aðra áhrií’a erfiðleikanna á heildarárangur nem- andans. Annar nemandi, sem við meiri örðugleika á að etja, getur þurft á að lialda svo umfangs- mikilli þjálfun, að hann þurfi að njóta sér- kennslu einstaklingslega eða í fámennum hópi mikinn eða lítinn hluta skólatímans. Örðugleik- ar hans eru þó ekki svo miklir, að rétt þyki að skilja hann frá félagsskapnum við bekkjar- systkini hans. Kennsla í sérbekkjum Fyrir þriðja nemandann, sem á við að stríða örðugleika, er liafa mikil áhrif á heildarnáms- getuna, kann að vera nauðsynlegt að auka áhrif- in af stuðningsaðgerðunum. Þessi nemandi gæti bæði þurft sérstaka þjálfun og róttæka breytingu á hinu félagslega umhverfi í skólanum. Hér get- ur, eftir eðli og stigi örðugleikanna, flutningur í sérbekk verið nauðsynlegur, þar sem meiri möguleikar eru á að láta í té sérstaka þjálfun, en jafnframt hafa stjórn á fleiri þáttum í um- hverfinu. Sérbekkirnir eru af þessum gerðtun: 1. Hjálpklass (hjálparbekkur, fyrir tornæm börn). 2. Lásklass (lestrarbekkur, fyrir börn með lestr- ;tr / stafsetningarörðugleika). 3. Skolmognadsklass (þroskabekkur, lyrir óskóla- þroska börn). 4. Observationsklass (atlnigunarbekkur, fyrir börn með hegðunarvttndkvæði). 5. Hörselsklass (heyrnttrdaufrabekkur). 6. Synklass (sjóndapurrabekkur). 7. Klass för rörelsehindracle (hreyfihamlaðra- bekkur). MENNTAMÁL 45

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.