Menntamál


Menntamál - 01.04.1970, Side 13

Menntamál - 01.04.1970, Side 13
aðferðum, sem notaðar eru við kennslu barna, sem ekki hafa getað tileinkað sér mál á eðlilegan hátt (heyrnleysingjakennsla). Þessi börn hafa heyrnartap frá ca. 75 dB, og mun fjöldi þeirra veru u. þ. b. 0.6%o. II. Börn með skerta sjón Fjöldi barna hefur smávægilega sjóngalla án þess að það komi að sök við nám. En þeim bcjrn- um með skerta sjón, sent þrátt fyrir leiðréttingu með sjónglerjum geta ekki fylgst með venjulegri kennslu og þarfnast því sérstakrar upjteldismeð- ferðar, má skipta í tvo hópa: 1) Sjóndöpur börn, sent með sérhæfðum kennslugögnum, sérstakri lýsingu og optiskum hjálpartækjum er unnt að kenna sem sjáandi, ýmist einstaklingslega í venjulegum bekkjum, sjóndapurraklinik eða sjóndapurrabekkjum við venjulega barnaskóla. Þessi börn hafa sjón milli Snellens 5/20 og 5/50 og fjöldi þeirra mun vera u. þ. b. t/2%0 af barnafjöldanum. 2) Mjög sjóndöpur börn, sem aðeins í litlum mæli geta numið gegnum augað og hafa meiri not af blindrakennslu, og alblind börn eða börn með svo litlar sjónleifar, að þau geta ekki hagnýtt sjónskynið á neinn hátt við nám. Þessi börn hafa lakari sjón en S 5/50 og þurfa vist í blindraskóla. Fjöldi þeirra mun vera u. þ. b. 0.15%0 af barna- fjöldanum. III. Börn með skerta hreyfifærni Börnum, sem af völdum heilaskaða (cerebral parese), annarrar fötlunar eða sjúkdóma geta ekki sótt venjulegan skóla, má skipta í tvo ílokka: 1) Heilasködduð börn, lömuð og fötluð, sem gætu haft not af námsvist í sérskóla, þar sem kostur væri læknismeðferðar, sjúkraþjálfunar og tiltæk væru sérhæfð kennslugögn og hjálpartæki við hreyfingar. 2) I.anglegusjúklingar á sjúkrahúsum og í heimahúsum. Fjöldi þessara hreyfihömluðu barna mun vera u. þ. b. 2.6%o barnafjöldans. IV. Börn með skerta greind Börnum, sem sakir greindarskorts geta ekki fylgt kennslu í venjulegum bekkjum almenns skóla, má skipta í 3 hópa: 1) Þjálfunarhæf börn með skerta greind (grv. 25—50). Þessi börn hafa ekki gagn af bóknámi, en hafa námshæfi á þrem sviðum: a) geta lært að hjálpa sér sjálf við verk eins og að matast, klæðast og halda sér hreinum, b) geta lært að aðlagast að vissu marki heimilisfólki og nágrönnum, en ekki stærra samfélagi, c) geta lært að hjálpa til á heimilinu, vernduðum vinnustað eða hæli. Fjöldi þessa hóps mun vera u. ]t. b. 4%o af barnafjöldanum. Þessi börn þurfa vist á fávitahælum, heimangöngudagheimilum eða sér- skólum. 2) Bóknámshæf börn með skerta greind (grv. 50—70). Þessi börn hafa svo skerta greind, að þau hafa ekki not af venjulegri kennslu í skólum (þar með taldir vcnjulegir hjálparbekkir), en hafa í sérskólum lágmarkshæfni til náms í bók- legum greinum og svo mikla aðlögunarhæfni, að ])au geta orðið óháðir þjóðfélagsþegnar og öðlast lágmarks starfshæfni, svo þau geta á fullorðins- árum séð sér farborða að öllu eða einhverju leyti. Fjöldi þessa Iióps mun vera u.þ.b. 1% af barna- fjöldanum. -5) Tornæm börn (grv. 70—85). Fjöldi þeirra tornæmu barna, sem ekki ná viðunandi náms- árangri í venjulegum bekkjum, en þurfa sérstaka námsskrá, sérhæfð kennslugögn og einstaklings- bundna kennsluhætti, er u. ]t. b. 2.5% af barna- fjöldanum. Vænlegasta kennsluskipanin er hjálp- arbekkir við almenna skcíla. V. Börn með skerta félagslega aðlögunar- hæfni og geðheilsu Börnum með hegðunarafbrigði af ýmsu tagi, sem hafa ýmist skaðleg áhrif á eigin þroska og MENNTAMÁL 51

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.