Menntamál - 01.04.1970, Page 15
íslenzkt sérstæði
Höfuðdrættir
í framtíðarskipan
sérkennslunnar
Fámennið og dreiling byggðarinnar gerir skipn-
lag og framkvæmd nauðsynlegrar sérkennslu eri-
iðari en ella mundi. Aí' 36.600 nemendum á
skyldustigi eru 21.433 á Reykjanessvæðinu, þar
af tæp 20 þúsund í Stór-Reykjavík. Þetta svæði
hefur því algera sérstöðu. Þar eru möguleikar
á að halda uppi marggreindri sérkennslu við
J beztu skilyrði og á liagkvæman hátt. Oðru máli
gegnir um aðra liluta landsins. Þar verður alls
ekki komið við þjónustu við fámennustu hópa
afbrigðilegra nemenda, sem mikla sérhæfingu
Jrarf til að kenna, og í vissum landshlutum verð-
ur sérfræðiaðstoð, hverju nafni sem nefnist, mjög
vandfengin um fyrirsjáanlega framtíð.
Þjóðfélag okkar er á ýmsan hátt svo scrstætt,
að beinar*fyrirmyndir verða ekki sóttar til ann-
arra þjóða. Við hljótum að reyna að aðlaga það
bezta, sem við þekkjum erlendis frá, okkar sér-
stöku aðstæðum. En þótt engin ákveðin lausn sé
fyrirfram sjálfgefin, og við verðum enn um lníð
að þreifa okkur áfram, ber nú nauðsyn lil að
marka heildarstefnu, sem miðar að því að koma
á svo sveigjanlegu skipulagi, að það sé starfhæft
með þeim mannafla og búnaði, sem þegar er til-
tækur, en hindri þó í engu eðlilega þróun.
Ný viðhorf í heilbrigðis-, uppeldis- og félags-
málum — fólgin í því að farið er að skoða málin
í stærra samhengi en áður — krefjast þess að
horfið sé frá hinu þrönga, hefðbundna skóla-
mynztri við lausn vandamála ýmissa liópa fatl-
aðra.1)
Aðstæður allar eru slíkar í okkar fámenna og
víðáttumikla landi, að sérkennsluna verður í
höfuðdráttum að skipuleggja fyrir landið í heild,
ef vel á að fara. Að Reykjavík undanskilinni get-
ur ekkert fræðsluhérað — né sarntök fræðsluhér-
aða — leyst þennan vanda viðunandi út af fyrir
sig. Slíkar tilraunir einstakra svæða leiddu óhjá-
kvæmilega af sér, að stórir landshlutar yrðu af-
skiptir með öllu. En víkjum nú að Itugsanlegri
lausn.
1) Orðið fatlaður er hér nolað í sömu merkingu og
orðið (handicapped, liandikapped) í grannlöndunum.
MENNTAMÁL
53