Menntamál


Menntamál - 01.04.1970, Page 20

Menntamál - 01.04.1970, Page 20
Skilyrði sérkennslu Skilyrði sérkennslu Yfireftirlitsmaður sérkennslunnar í Dan- mörku, I. Skov Jörgensen, hefur skilgreint sérkennslu á þessa lund: Sérkennsla er heiti á kennslu, sem sniðin er handa líkamlega, sálrænt eða félagslega hömluðum nemendum. Hér er um að ræða lögboðna (ordineret) kennslu, sem er byggð á uppeldis-, sál- fræðilegum og læknisfræðilegum rann- sóknum og framkvæmd með umfangs- mikilli notkun tæknilegra hjálpargagna. Sérkennsla víkur frá gildandi ákvæð- um um almenna kennslu að því er tekur til kennslugagna og kennsluaðferða. Hún einkennist af því, að sérkennarar eru sérstaklega menntaðir, að nemendahóp- arnir eru fámennir og að hún er skipu- lögð af samvinnuhópi starfsmanna, en meðal þeirra hefur skólasálfræðingurinn lykilhlutverk. Reynum nú í stuttu máli að gera okkur grein fyrir þeim skilyrðum, sem þurfa að vera fyrir hendi, til þess að um sérkennslu geti orðið að ræða, í Ijósi þessarar glöggu skilgrein- ingar. Lagaákvæði Grundvöl! að sérkennslu þarf að leggja með lagafyrirmælum. Við höfum lög um fávitastofn- anir frá 22. apríl 1967 og lög um Heyrnleys- ingjaskóla frá 30. marz 1962, ennfremur þoku- kennd fyrirmæli í lögum um vernd barna og ungmenna, frá 13. maí 1966, lögum um fræðslu barna frá 29. apríl 1946 og lögum um gagn- fræðanám frá 7. maí 1946, en þar með er upp- talið. Hér þarf að taka til hendi. Samband ís- lenzkra barnakennara, Landssamband fram- haldsskólakennara og Sálfræðingafélag ís- lands komu á framfæri við nefnd þá, er starfar MENNTAMÁL 58

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.