Menntamál - 01.04.1970, Blaðsíða 29
Forskólakennsla
w
a
Seltjarnarnesi
„Skólaskyldan á aS hefjast við sex
ára aldur,“ segir Páll Guðmundsson,
skólastjóri.
Páll Guðmundsson.
Undanfarna tvo vetur hafa sex ára börn
notið kennslu í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnar-
nesi. Kennsla sex ára barna í því umfangi og
formi, sem þarna á sér stað, er nýjung við
skyldnámsskóla á íslandi. Menntamál leituðu
frétta hjá skólastjóranum, Páli Guðmundssyni,
um þetta mál. Jafnframt báðu þau Unni
Ágústsdóttur, sem annast hefur þessa
kennslu, að segja frá starfinu í stuttu máli.
— Hvað kom til, að þið lókuð upp kennslu
6 ára barna á Selijarnarnesi?
— Ja, upphafið er nú kannski það, að ég
kynntist forskólakennslu í Esbjerg árið 1961, og
síðan hef ég gengið með þá hugmynd, að æski-
legt væri að haía áhrif á það, hvernig börn eru
gerð skólaþroska. Vafalaust liefur það átt sinn
þátt í að hugmyndin varð að veruleika, að við
vildum koma í veg fyrir hina svokölluðu tíma-
kennslu í skólahverfinu.
— Hvenær hófst þessi kennsla hjá ykkur?
— Það var árið 1966, að hreppsnefndin veitti
lé til deildanna, og kennslan hófst haustið 1967
að loknum nokkrum undirbúningi.
— Hvernig var þessum undirbúningi háttað?
— Eftir samþykkt hreppsnefndar var farið að
leila frekari upplýsinga um börnchaveklasser i
Danmörku, sem eru raunar okkar aðalfyrirmynd,
og í samræmi við samþykkt hreppsnefndar var
leitað eftir manneskju til að senda lil Danmerkur
á námskeið í Kennaraháskólanum í Emdrup-
MENNTAMÁL
67