Menntamál - 01.04.1970, Síða 32
Fyrir enda stofunnar er leiksviðið, sem oft kemur að góðum notum
með 4—6 leikendum. Annað fjallar um kurleis börn,
hitt um þau ókurteisu. Áhorfendur íá svo að láta i liós
álit sitt á, hvor hópurinn var skemmtilegri. Tilfinning
íyrir vináttu er ekki orðin mjög þroskuð hjá 6 ára börn-
um. Gott er því að vekja athygli á góðum vin og hve
slæmt getur verið að eiga óvin. Alltaf er bezt að segja
sögur með svona verkefnum, því þær verða barninu
minnisstæðari en prédikun.
Minnisstæður er mér tíminn, þegar við töluðum um
tennurnar. Ýmislegt hafði borið á góma um það, sem
óhollt var fyrir tennurnar, en síðan spyr ég: Segið mér
frá einhverju, sem er hollt fyrir tennurnar. Margar hend-
ur flugu á loft, og eigandi einnar sagði: Magnyl, mamma
gefur mér það alltaf, þegar ég íæ iannpinu!
Eftir spjall um verkefni, vinnum við eitthvað í sam-
bandi við það. Hundinn gerum við e. t. v. úr leir, hest-
inn úr dagblaðapappír, ekki gleymum við hnakk eða
beizli, og tagl og fax er gert úr lopa. Allir fara svo ríð-
andi heim þann daginn á Gusti, Stjörnu eða Grána.
Sum verkefni vinna nokkur börn saman. Þannig unn-
um við t.d. saman Indíánaþorp (sjá mynd). Þó er áber-
andi, að 6 ára börn hafa minni ánægju af hópverkefnum
en eldri börn. Þau vilja helzt ,,eiga“ það, sem þau
gera, en að sjálfsögðu þarf að þroska samvinnukennd-
ina.
Þegar verkefni er lokið, fá börnin einstaka sinnum
að fara heim með það. Oftar eru þau þó sett í skúff-
una, en strax á öðrum degi fær hvert barn sína skúffu,
sem það merkir sér. Barnið klippir litlar myndir út úr
blöðum og límir þær á skúffuna sína. Þarna getur hvert
barn auðveldlega komizt í sína hirzlu og geymt þar
verkefni eða föndur, sem það er að vinna að.
Ef tími vinnst til, eins og oftast er fyrstu 3 mánuðina,
hefst svo hinn frjálsi leikur. Hann er í stuttu máli íólg-
inn í því, að börnin velja sér sjálf verkefni. Stofan okk-
ar er mjög heppileg fyrir þetta starf, ekki sízt vegna
góðs hliðarherbergis. Þar höfum við lítið smíðaverk-
stæði með nauðsynlegasta útbúnaði. Þar er líka gott að
hafa fataskipti, þegar leikrit er á ferðinni. Einnig notum
við það fyrir ,,ærslherbergi“.
í septembermánuði förum við alltaf út í írímínútur, on
fljótlega íer svo, að flest börnin kjósa heldur að vera
inni og halda áfram við sinn leik eða starf. Ef þreytu
verður vart hjá barni, getur verið gott að ærslast smá-
stund án þess að trufla vinnu hinna barnanna. Þá er upp-
lagt að glíma eða tuskast svolítið í hliðarherberginu.
Eftir nokkra sjónvarpsþætti í fyrra um íslenzku glím-
una, varð ég var við mikinn áhuga á henni hjá nokkrum
drengjum. Notaði ég þá tækifærið og kynnti helztu
brögð og reglur. Vakti þetta almenna hrifningu og höfð-
MENNTAMÁL
70