Vorið - 01.03.1948, Síða 7

Vorið - 01.03.1948, Síða 7
VORIÐ S og spjalla og renna sér fótskriðu um glerhálar göturnar. Eg hef tileinkað þeim þetta erindi, sem ort er við fallegt lag: Þegar morgunblærinn leikur frjáls um ljósan háls og kinn, Þegar loftið er svalt og himinn skær þá í glöðurn flokki liratt ég stefni heirn í skólann minn, því að hann er mér innilega kær. ÖIl við syngjum morgunljóð, þegar sól á ísaslóð varpar sindri og Ijóma fjær og nær. Látum morgunsöngva óma glatt og örfa hug og blóð, vekja allt það, er bezt í sálum grær. Á Syðri-Varðgjá kvaddi ég Áskel og steig á bak Varðgjár-Rauði, og aldrei get ég nógsamlega þakkað Páli bónda þann höfðingsskap að lána mér, ókunnugum manni, góð- an hest — án endurgjalds — í því færi, sem þarna var. Og nú var lagt á Vaðlaheiði. — Fann ég það brátt, að Stefán póstur er karlmenni mikið og lætur sér fátt fyrir brjósti brenna. Sló hann í klára sína og „skellti undir nára“, eins og véizlugestir Loðinbarða forðum daga. Frost var grimmilegt og heið- in löng og ströng. Var ekki laust við, að okkur sviði í nef og eyru. En áfram var haldið, á fjórðu klukku- ■stund samfleytt. Og kl. rúmlega eitt komum við að Skógum í Fnjóska- dal. Þar fengum við rausnarlegar viðtökur og „þétta magafylli". Eftir þetta fór veður að mildast og inni í Ljósavatnsskarði mátti heita logn og blíða. Tók nú að rökkva og stefndi póst- ur að Litlu-Tjörnum til gistingar, en ég tók mér náttstað í Birkihlíð, sem er lítið eitt innar í Skarðinu. Birkildíð er einstaklega skemmti- legt heimili, og allir hlutir eru með myndarskap hjá Braga bónda og konu hans. — Mér var líka tekið vel, eins og jafnan fyrr. Var mér boðið í stofu, en þar sátu gestir að spilum. Var þar kominn Tryggvi Þorsteins- son, kennari og skátaforingi, ásamt öðrum Akureyringi. Höfðu þeir ferðast á skíðunr frá Akureyri í því skyni, að hressa upp á raflínuna, sem alltaf var að bila. Ég er ekki „spilamaður" og af- jrakkaði boð þeirra um þátttöku í spilunum. Gaf ég mig fljótlega á tal við börnin, sem eru bæði kurteis og skemmtileg. Komu þau til mín, öll fjögur — Baldur, Karl, Þórhalla og Elín — og sögðu mér hitt og annað, sem gaman var að heyra, meðal ann- ars söguna af Brandrós, og hún er nú ekki svo slök. Áður en varði hlupu litlu syst- urnar, (sem eru tvíburar), fram í eldhús og sóttu þangað tvo grá- bröndótta ketti. Var þar komin hin marglofaða og þráttumtalaða Brandrós, söguhetja þessarar grein- ar, og dóttir hennar Branda, rúm- lega ársgömul fegurðarstjarna.

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.