Vorið - 01.03.1948, Qupperneq 10

Vorið - 01.03.1948, Qupperneq 10
6 V O R I Ð „Þú átt að sofa í loftinu hjá vinnumönnunum,“ svaraði móðir lians. „Ég sá sjálf rúmið þitt, þegar ég var þarna á dögunum. Vinnu- mennirnir sofa þarna líka, og þetta er á bak við hesthúsið. Svo skaltu bara vera óhræddur, þetta gengur allt vel, ef þú aðeins verður góður drengur. Undir því er allt komið. — ----Og vertu nú sæll, Hinrik. Ég skal biðja guð að vera með þér, og ég mun biðja hann að forða mér frá því að heyra nokkuð ljótt um þig. II. Að svo mæltu þrammaði þessi litli og sorgmæddi drengur af stað með gömlu fötin sín í litlum böggli, sem varð til þess, að grimmur og aðsóps- mikill hundur á hinu nýja heimili hans gerði sig líklegan til að éta hann upp til agna og varnaði lion- um að komast lieim að bænum. Öll- um hundum er illa við ókunnugt fólk með poka á bakinu. En eftir langa mæðu kom þó einhver frá bænum og hjálpaði honum heim. Þar var liann látinn setjast við fall- egt borð. Því næst var honum vísað inn til vinnumannanna, og svo vandist liann smátt og smátt siðuin og hátturn þessa nýja heimilis. Hann var á sífelldum hlaupum og varð að leysa allra erindi. Hann sóp- aði hlöðuna, hjálpaði til að lialda liesthúsinu hreinu, en aðalstarf hans var þó það að vera kúasmali. Hann var sæmilega ánægður með lífið, því að sannleikurinn var sá, að nú var hann laus við iðjuleysið og slæping- inn, sem áður hafði gert lionum svo illt. Nú þurfti hann ekki að sitja að- gerðalaus úti í sólskininu og bíða eftir að einhver kæmi, sem hann gæti lagt lag sitt við. Nú þurfti hann ekki að bíða eftir því, að tim- inn liði, þessi endalausi tími frá há- degi til kvölds. Og nú stal hann engu, því að hann hafði um allt ann- að að hugsa. Og þegar ómur kirkju- klukknanna barst út yfir sveitina á kvöldin, fann hann til einhvers un- aðar, sem fyllti sál hans friði. Hann var orðinn drengur, sem vann og gerði gagn. Og þegar móðir hans kom ör- magna af þreytu einn dag um sum- arið til að vita hvernig honum liði, var hún ánægð eftir atvikum, því að það leit út fyrir, að hann mundi fá að vera þarna áfram. „Það er eftirtektarvert, hvað þessi drengur er góður við skepnurnar,“ sagði liúsbóndi lians. „Ég hef jafn- vel heyrt hann bjóða kálfunum góða nótt, og allar skepnur þrífast, sem hann kemur nálægt. Ég er mjög ánægður með þetta.“ Svo þrammaði móðir hans aftur hina löngu leið heim í kofann sinn, og nú var hún svo glöð, að hún veitti því varla eftirtekt, hve veg- urinn var langur og erfiður. Hann hafði sýnt henni allt, sem liann átti að ráða yfir: Kálfana, kýrnar, ærn- ar, lömbin og hænsnin, en þó sér-

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.