Vorið - 01.03.1948, Page 35
VORIÐ
31
þótti vænt um alla menn, heldur en
Hrólfi, sem þótti ekki vænt um
neitt nema sjálfan sig.
Þannig gæti ég haldið áfram, en
þess er ekki þörf. Þarna er islenzkt
lestrarefni fyrir börn, bæði til
skemmtunar og fróðleiks, sem óhætt
er að mæla með.
Síðasta sagan í bókinni heitir:
„Verndarengillinn“. í henni er sagt
frá verndarengli, sem fær það hlut-
verk að verða verndari þriggja fá-
tækra barna, sem hafa misst foreldra
sína. Sagan segir frá, hvernig hann
bjargar þeim frá bráðri hættu. Hér
er í ævintýrabúningi fjallað um
merkilegt efni, samband hins sýni-
lega og ósýnilega heims. Og ef til
vill er þetta það merkilegasta við
þessa bók, að í hverri sögu er brugð-
ið upp þeim andlegu viðhorfum,
að allt lífið sé stöðug leit að sið-
rænum verðmætum. En þeirra við-
horfa hefur áður gætt tiltölulega
h'tið í íslenzkum barnabókum.
E. S.
ÞEIR KA UPEND UR
og útsölumenn, sem ekki hafa
sent greiðslu fyrir síðasta árgang
(1947), eru beðnir að gera það nú
þegar. Útkoma Vorsins byggist á
því, að allir kaupendur standi í
skilum við það.
Snorrabikar
Bikar þessi er gjöf frá Snorra Sig-
fússyni, námsstjóra, til Barnaskóla
Akureyrar. Skal hann vera verð-
launagripur, og hlýtur hann sá
bekkur skólans, er nær beztum
árangri í sundi á vori hverju. Er
bikarinn því farandbikar, er aldrei
vinnst til eignar. Verður væntan-
lega keppt um hann á komandi
vori.
Myndirnar i sögunni „Káti-Láki“
eru eftir Gunnlaug H. Sveinsson,
kennara, Akureyri.