Vorið - 01.06.1964, Blaðsíða 4

Vorið - 01.06.1964, Blaðsíða 4
unglingum og margar þeirra haja verið fluttar í Ríkisútvarpið. Sagan af honum Hjalta litla hefur notið mestra vinsœlda af þessum unglingabókum, og ég gæti trúað að hún muni lifa lengst. En um 30 bækur alls hafa komið út eftir Stefán. Ef ég œtti að segja hvað einkenndi unglingabækur Stefáns Jónssonar, þá mundi ég segja, að það væri raunsæ lýsing á viðbrögðum og sálarlífi persónanna vermt af lilýjum undirstraumi. Þá hefur Stefán ort talsvert af léttum gamankvæðum fjrir börn, sem náð hafa miklum vinsældum eins og kvæðið af honum Gutta. Því að kjmni- gáfu á Stefán í ríkum mæli. Síðustu árin hefur hann ritað stærri skáldsögur s. s. Sendibréf frá Sand- strönd og Vegurinn að brúnni. f bréfi til mín farast honum svo orð um skáldskap sinn. Ég tel rétt að birta það, þar sem það skjrir afstöðu hans til lesendanna. En lesendur á Stefán marga, því að bækur hans eru mikið kejptar og lesnar. „Ég get ekki svarað því, hvað mér þjkir vænzt um af því, sem ég hef skrifað fjrir börn. Mér er sjálfum ekki Ijóst, livað ég hef skrifað fjrir börn og hvað fjrir þroskaða lesendur. Þetta á þó aðeins við sögurnar. Ljóða- kverin mín litlu voru börnum ætluð. Fjrstu löngu söguna, Vini vorsins, skrif' aði ég einnig sem barnasögu, en eftir það fór þetta að verða dálítið undar- legt. Ég held, að m,ér sé óhœtt að segja, að þær sögur mínar allar, sem næstar urðu Vinum vorsins og til þeirrar, sem síðust varð, Sumar í Sóltúni, seU skrifaðar fjrir fullorðna lesendur og þó þannig, að í þeim sé ekkert að finna, sem unglingar mega ekki lesa. Ég lief rejnt í þessum sögum, að verða við þeim kröfum, sem fullorðið fólk með nœman bókmenntasmekk gerir til skáldskapar. Sjálfsagt hefur mér tekizt þetta misjafnlega vel, en ekki get ég gert þar upp á milli. Mér þjkir þar ekki vænna um eitt en annað, sé á heildina litið. Það er satt, að ég hef skrifað unglingasögur og í vissu augnamiði, en sjálfum er mér Ijóst, að nokkur vandkvæði eru á því, að unglingar nútímans geti notið þeirra. Hitt er aftur á móti alveg víst, að fullorðið fólk, sem gamun hefur af skáldskap, hefur ánægju af þeirn, svo framarlega, sem það les þ(nr- Þetta lief ég marg sannað. En fullorðið fólk les bara sögurnar ekki nenin fátt, vegna þess, að það vill ekki lesa barnasögur. Þá fer dæmið að hta svona út: Ég hef skrifað nokkrar skáldsögur, sem ég ætla fullorðnu fólkt 50 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.