Vorið - 01.06.1964, Side 7

Vorið - 01.06.1964, Side 7
STEFÁN JÓNSSON: knattspyrnumenn Níu ár, það er svo sem ekki hár aldur. Þennan aldur verða þó allir að sætta Slg við einu sinni á ævinni. Það verða l)eir einnig að gera Hörður og Ari. En Hörður og Ari eru frændur tveir. Ljós- ^ærðir, bláeygð ir snáðar. Það var í vor. Þið vitið, hvernig það er á vorin, þegar veðrið er gott. Þá eru kvöldin svo ^jört og fögur, að það er næstum frá- gangssök að fara inn að hátta, ekki sízt þegar knattspyrnuvöllurinn er svo stutt H'á heimili manns, að þangað er aðeins þriggja mínútna gangur. Allar góðar sögur hafa formála. Þessi Saga hefur líka formála. Hann er svona: Einn dag í vor kom sá atburður fyrir þá Hörð og Ara, að faðir Harðar gaf þeim frændum knött einn fagran. Slíka Huetti kalla allir drengir fótbolta, enda er ekkert út á nafnið að setja. En það, að eiga svona bolta er sama og vera orð- 11111 allmikill karl. Þess vegna kyssir tnaður beint á munninn, sem gefur ^anni svona bolta, og það allra minnsta, Sem hægt er að segja, er eitt takk. Síðan kemur bros, sem byrjar í augunum og ðreiðist þaðan ýfir allt andlitið. Það er íallegt bros. Og drengirnir voru hinir anægðustu yfir gjöfinni. Þegar kvöld Var komið, gengu þeir allborginmann- legir út að knattspyrnuvelli með knött- inn góða. Því miður var þetta bara lítill völlur, og í þetta sinn var þar ekkert rúm fyrir Hörð og Ara. Eins og áður er sagt voru þeir bara níu ára. En þarna á vellinum voru nefnilega menn, sem búnir voru með meira af tilverunni en níu ár. Þeir höfðu réttinn. Þeir voru þarna að æfingum. Sumir voru meira að segja í hvítum skyrtum og bráðum orðnir menn. Það er betra fyrir níu ára drengi að hafa hljótt um sig í návist eldri drengja. Hinir síðarnefndu eru vísir til að kalla þá fyrrtöldu „smá- patta“, en það orð er eiginlega skamm- aryrði og felur í sér ótakmarkaða lítils- virðingu. Það var ekki um annað að gera fyrir vini okkar, Hörð og Ara, en að forða sér héðan sem fyrst. Það gat meira að segja verið hættulegt að stað- næmast við völlinn. Setjum svo, að ein- hver hinna stóru kæmu auga á, að þeir félagar væru með nýjan knött. Meira er ekki þörf að segja. Nei, fyrir Hörð og Ara var ekki annað að gera en forða sér. Nú er það svo með þá, sem eru bara níu ára, að þeim dettur stundum ýmis- legt í hug, sem okkur gamla fólkinu gæti ekki komið til hugar. Þess vegna er það líka oft gaman að vera níu ára. VORIÐ 53

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.